Landsbankinn búinn að höfða mál gegn Borgun

Landsbankinn
Auglýsing

Lands­bank­inn hefur stefnt Borgun hf., for­stjóra Borg­unar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­an­um. 

„Málið er höfðað til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu stefndu. Það er mat bank­ans að hann hafi orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bank­inn fékk ekki upp­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ. á m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Banka­ráð Lands­­bank­ans til­kynnti í ágúst að ákveðið hefði verið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014. 

Auglýsing

Lands­­­banki Íslands, sem íslenska ríkið á, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í nóv­­em­ber 2014 þar sem fram kom að Stein­þór Páls­­­son banka­­­stjóri, hefði und­ir­­­ritað samn­ing um sölu á 31,2 pró­­­sent eign­­­ar­hlut í Borg­un. Kaup­verðið á hlutnum var tæp­­­lega 2,2 millj­­­arðar króna og var kaup­andi hlut­­­ar­ins Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag Borg­unar Slf. þar sem stjórn­­endur Borg­unar voru meðal hlut­hafa.

Ekk­ert for­m­­­legt sölu­­­ferli fór fram áður en félagið var selt, en Magnús Magn­ús­­­son, for­svar­s­­­maður félags­­­ins, var sá sem setti sig í sam­­­band við Lands­­­banka Íslands og sýndi áhuga á kaupum á hlut Lands­­­bank­ans. Kaupin fóru því fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­­­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn.

Máls­höfð­unin byggir á því að Lands­­bank­inn hafi verið hlunn­far­inn þar sem ekki voru lagðar fram upp­­lýs­ingar um mög­u­­legt aukið virði Borg­un­­ar, vegna kaupa VISA Inc. á VISA Europe. 

Sam­­kvæmt frétt Kjarn­ans frá því 9. febr­­úar á þessu ári, reikn­aði Borgun með því að fá 33,9 millj­­­ónir evra, um 4,8 millj­­­arða króna, í pen­ingum þeg­ar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borg­un, líkt og aðr­ir ­leyf­­­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­­­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­­­mæt­i 11,6 millj­­­ónir evra, eða um 1,7 millj­­­arðar króna. Auk þess mun Visa Inc. greiða ­leyf­­­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu ­starf­­­semi Visa í Evr­­­ópu á næstu fjórum árum, en hlut­­­deild ­Borg­unar af þeirri fjár­­­hæð mun ráð­­­ast af við­­­skiptaum­­­svifum Borg­unar sem hlut­­­fall af heild­­­ar­við­­­skiptaum­­­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun fengi um 6,5 millj­­­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None