Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt myndskeið sem sýnir leið Birnu Brjánsdóttur frá Austurstræti við verslun 10/11 og þar sem hún gengur upp Bankastræti og þar til hún kemur upp Laugaveginn við skemmtistaðinn Big Lebowski.
Ekkert hefur spurst til Birnu, sem er tvítug að aldri, frá því á aðfararnótt laugardags og stendur nú yfir viðamikil leit af henni. Björgunarsveitir, lögreglan og almenningur - þar með talið fjölmennt lið vina og skyldmenna Birnu - hafa leitað hennar.
Lögreglan biður alla þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa samband í gegnum Facebook eða í síma 444-1000.
Auglýsing