Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að unnið sé að því innan ráðuneytis hans að opna bókhald ríkisins upp á gátt. Þegar það hefur verið gert verður hægt að fletta upp einstökum kostnaðarreikningum ráðuneyta. Benedikt nefnir sem dæmi að ef keyptur er þjónusta leigubíls eða ný ljósritunarvél þá sé hægt að nálgast upplýsingar um hvað hafi verið nákvæmlega verið keypt, hver keypti, til hvers og hvar ljósritunarvélin sé notuð. Benedikt sagði að verkefnið verði kynnt mjög fljótlega.
Þetta kom fram í framsögu hans á opnum fundi sem þingflokkur Viðreisnar hélt með flokksmönnum sínum í dag. Fundinum var streymt beint á Facebook.
Benedikt sagði einnig að hann ætlaði að opna á allar upplýsingar um hvernig skipað yrði í hin ýmsu ráð og nefndir. Þá yrði eigendastefna ríkisins skýr og opinber. Til dæmis yrði söluferlið á bönkunum sem ríkið á opið frá upphafi, gerð í góðri sátt flokka á þingi og í góðri sátt við þjóðina. Benedikt sagði það ekki skipta höfuðmáli þótt það myndi taka tíu ár að selja þá þannig að það yrði gert almennilega, en að hann væri þeirrar skoðunar að það væri betra fyrir þjóðina að skulda minna og eiga færri banka.