Nicola Sturgeon
Auglýsing

Nicola Stur­ge­on, fyrsti ráð­herra Skotlands, gagn­rýnir Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, harð­lega fyrir ræð­una sem May hélt fyrr í dag um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­in­u. 

Skotland kaus ekki þá leið sem birt­ist í áætl­unum May um útgöngu rík­is­ins úr ESB og áætlun Bret­lands er ekki í hag skosku þjóð­ar­inn­ar, segir Stur­geon meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu á Face­book-­síðu sinni. „Þrátt fyrir öll fal­legu orðin þá er orðið ljóst að Bret­land stefnir í hart Brex­it, sem gæti haft í för með sér efna­hags­legar hörm­ung­ar. Ákvarð­anir eru ekki teknar rök­rétt með hags­muni lands­ins í huga, heldur af þrá­hyggju harða hægr­is­ins í Íhalds­flokkn­um,“ segir Stur­ge­on. 

Hún segir einnig vera að koma betur og betur í ljós málið sem liggur til grund­vallar í útgöngu Bret­lands, og það sé spurn­ingin um það hvernig ríki Bret­land ætli að vera. For­sæt­is­ráð­herr­ann hafi sýnt á spilin í lok ræðu sinnar þegar hún tal­aði um mögu­leik­ann á því að Bret­land verði lág­launa- og lág­skatta­ríki með lítil rík­is­af­skipti. Afleið­ing­arnar verði þær að all­ir, nema kannski þeir ríkustu, verði verr settir en nú er. 

Auglýsing

„Skosk stjórn­völd settu fram mála­miðl­un­ar­til­lögur fyrir jól sem myndu vernda hags­muni Skotlands – og við gerðum það ljóst að það mik­il­væg­asta sé aðild að innri mark­aðnum þegar kemur að efna­hags­legum og frek­ari þjóð­ar­hags­munum Skotlands.“ Á meðan verið sé að ræða þessar til­lög­ur, og Ther­esa May hafi síð­ast í dag lofað að skoða til­lögur Skota, hafi stjórn­völd ekki sýnt fram á það með neinum hætti að verið sé að hlusta á skosk stjórn­völd eða að hags­munir Skotlands séu teknir til greina. 

„Það verður að breyt­ast ef það á að vera ein­hver trú á því að hægt sé að tryggja hags­muni Skotlands innan Bret­lands. Og ef Bret­land ætlar ekki að vera áfram á innri mark­aðn­um, eins og for­sæt­is­ráð­herr­ann segir nú, þá verður að skoða til­lögur okkar um hvernig hægt er að leyfa Skotum að vera þar áfram alvar­lega.“ 

Skosk stjórn­völd muni því áfram taka ákvarð­anir með yfir­veg­uðum og ábyrgum hætti, en það verði að vera morg­un­ljóst að stjórn­völd í Bret­landi geti ekki beitt sér gegn vilja og hags­munum Skotlands, og neita öllum til­raunum til mála­miðl­ana. 

„Það virð­ist vera sem íhalds­stjórnin í West­min­ster haldi að hægt sé að gera Skotlandi hvað sem er og kom­ast upp með það. Hún verður að skilja hversu rangt hún hefur fyrir sér í því. Bresk stjórn­völd mega ekki kom­ast upp með að taka okkur út úr Evr­ópu­sam­band­inu og innri mark­aðn­um, án þess að skeyta um áhrifin á hag­kerfið okk­ar, störf­in, lífs­gæði og orð­spor okkar sem opins, frjáls­lynds lands, án þess að Skotland hafi mögu­leika á því að velja á milli þess og ann­ars konar fram­tíð­ar.“ Með ummælum sínum í dag hafi Ther­esu May tek­ist að gera valið lík­legra fyrir Skota, þeir verði að hafa mögu­leika á sjálf­stæð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None