Samningaviðræður við Breta verða „mjög, mjög, mjög erfiðar“

juncker.jpg
Auglýsing

Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að samn­inga­við­ræður um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu verði „mjög, mjög, mjög erf­ið­ar.“ Juncker ræddi við blaða­menn í Strass­borg í dag og tal­aði meðal ann­ars um ræðu Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um útgöng­una. 

Juncker gerði lítið úr full­yrð­ingum um að ræða May hafi verið hótun gagn­vart ESB, og sagð­ist leggja áherslu á það að sam­komu­lag um útgöng­una þurfi að vera með hags­muni Breta og ESB í huga. 

Juncker sagði jafn­framt að hann hefði rætt við Ther­esu May á þriðju­dags­kvöld og sagt henni að fram­kvæmda­stjórnin væri ekki fjand­sam­leg. „Við viljum sann­gjarnt sam­komu­lag við Bret­land, og sann­gjarnt sam­komu­lag fyrir Bret­land, en sann­gjarnt sam­komu­lag þýðir að það sé sann­gjarnt fyrir Evr­ópu­sam­band­ið.“ 

Auglýsing

Hann bætti því við að samn­inga­við­ræð­urnar yrðu „mjög, mjög, mjög erf­ið­ar“ vegna þess að Bret­land verði nú álitið sem erlent og utan­að­kom­andi ríki gagn­vart Evr­ópu­sam­band­in­u. 

Juncker hefur sagst heita því að gera hvað sem hann getur til að sjá til þess að samn­inga­við­ræð­urnar verði eftir bók­inni og skili góðri nið­ur­stöðu. „Þeir sem telja að nú sé kom­inn tím­inn til að hluta sundur Evr­ópu gætu ekki haft meira rangt fyrir sér­.“ 

Af hverju eruð þið ennþá hérna?

Nú er fundað á Evr­ópu­þing­inu í Strass­borg, en litlum tíma hefur verið varið í umræður um Brex­it. Mest hefur verið rætt um flótta­manna­vand­ann og svo örygg­is­mál og varnir gegn hryðju­verk­um. 

Engu að síður voru Evr­ópu­þing­menn Breska sjálf­stæð­is­flokks­ins, UKIP, gagn­rýndir af öðrum Evr­ópu­þing­mönn­um. Guy Ver­hof­stadt, full­trúi Evr­ópu­þings­ins í Brex­it-­mál­um, spurði meðal ann­ars hvað þeir væru enn að gera á Evr­ópu­þing­inu. „Af hverju eruð þið ennþá hérna? Ég spyr mig. Farið til Banda­ríkj­anna. Verið við­staddir inn­setn­ing­ar­at­höfn Trump í stað þess að vera hér­.“ 

Don­ald Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seti, hefur sem kunn­ugt er sagt að útganga Bret­lands úr ESB hafi verið gáfu­legt skref. „Banda­rískur for­seti segir opin­ber­lega öðrum ríkjum að kljúfa sig frá Evr­ópu­sam­band­inu. Ég hef aldrei séð annað eins, aldrei heyrt annað eins.“ Ver­hof­stadt sagði einnig að kosn­ing Trump ætti að vera vakn­ing fyrir Evr­ópu. „Horf­umst í augu við það, vendi­punkt­ur­inn er hér, Banda­rískur for­seti, Trump, sem er opin­ber­lega á móti Evr­ópu­sam­band­inu og segir að önnur ríki muni snúa sér burt. Hvaða vendi­punkt þurfum við ann­an?“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None