Sigurður Már áfram upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Sigurður Már Jónsson
Sigurður Már Jónsson
Auglýsing

Sig­urður Már Jóns­son verður áfram upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Hann hefur gengt starf­inu síðan í októ­ber 2013 þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og ráðu­neyti hans réð hann til starfa.

Starf upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar var búið til árið 2012 í for­sæt­is­ráð­herra­tíð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur þegar hún leiddi rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Jóhann Hauks­son, fjöl­miðla­mað­ur, var fyrstur til þess að gegna þessu starfi en honum var sagt upp af rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs og Sig­urður Már ráð­inn í hans stað.

Auglýsing

Ráðn­ing upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar er gerð með sömu heim­ild í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands sem gerir ráð­herrum kleift að ráða til sín aðstoð­ar­menn og rík­is­stjórn að ráða þrjá til við­bótar ef þörf kref­ur. Ráðn­ing upp­lýs­inga­full­trú­ans fellur undir seinni lið þess­arar máls­greinar og er þess vegna einn af þessum þremur sem rík­is­stjórnin getur ráðið handa hverjum ráð­herra „ef þörf kref­ur“. Bjarni Bene­dikts­son hefur þegar ráðið sér einn aðstoð­ar­mann. Það er Svan­hildur Hólm en hún var einnig aðstoð­ar­maður Bjarna þegar hann var fjár­mála­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

Áður hafði for­sæt­is­ráðu­neytið upp­lýs­inga­full­trúa sem sá um sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við fjöl­miðla eins og tíðkast í öðrum ráðu­neytum á Íslandi. Sam­kvæmt skipu­riti for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins heyra aðstoð­ar­menn beint undir for­sæt­is­ráð­herra. Upp­lýs­inga­full­trúar ann­arra ráðu­neyta heyra undir skrif­stofu­stjóra ráðu­neyt­anna en ekki beint undir ráð­herra hverju sinni. Upp­lýs­inga­full­trúar ráðu­neyta þurfa þess vegna að vera ráðnir sam­kvæmt reglum um opin­ber störf.

Upp­fært kl 14:41 – Upp­haf­lega var sagt að upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar væri aðstoð­ar­maður sem ráð­inn væri af for­sæt­is­ráð­herra. Hið rétta er að rík­is­stjórnin hefur sam­kvæmt sömu máls­grein lag­anna um aðstoð­ar­menn ráð­herra heim­ild til að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar við þá tvo sem hver ráð­herra getur valið sér. Þetta hefur verið áréttað í text­anum hér að ofan.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None