Samkvæmt nýrri eigendastefnu stjórnvalda, þegar kemur að bankakerfinu, er ekki gert ráð fyrir að ríkið muni eiga meira í endurreistu bönkunum þremur en 34 til 40 prósent hlut í Landsbanka Íslands. Afgangurinn af eign ríkisins í bönkunum verður seldur. Þar með 100 prósent hlutafjár í Íslandsbanka og 13 prósent hlutur í Arion banka.
Ríkið á 98,2 prósent hlut í Landsbankanum, sem er langsamlega stærsti banki landsins, og er stefnt að því að selja bróðurpartinn þegar hagfelld skilyrði eru fyrir hendi og þá í gegnum skráningu á markað. Ekki er fjallað um það nákvæmlega hvað teljast vera hagfelld skilyrði til sölu eða, en fram kemur að ástæða þess að ríkið vilji halda eftir 34 til 40 prósent hlut í Landsbankanum sé sú að það stuðli að stöðugleika í fjármálakerfi landsins og tryggi einnig nauðsynlega innviði þess.
Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneyti Benedikts Jóhannessonar er staðan í kerfinu, og stefnan þegar kemur að einstaka eignarhlut, sett upp með eftirfarandi hætti:
Landsbankinn hf. (98,2% eignarhlutur ríkisins)
- Stefnt er að því að ríkissjóður eigi verulegan eignarhlut, 34-40%, til langframa í því skyni að stuðla að stöðugleika í fjármálakerfi landsins og tryggja nauðsynlega innviði þess.
- Eignarhlutur ríkisins í bankanum verði að öðru leyti seldur á næstu árum þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og jafnframt verði stefnt að skráningu á hlutabréfamarkað.
Íslandsbanki hf. (100% eignarhlutur ríkisins)
- Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi.
- Ríkið eignaðist 100% í Íslandsbanka sem hluta af stöðugleikaframlagi Glitnis við uppgjör slitabúsins. Eignarhald ríkisins á Íslandsbanka byggist á lögum nr. 60/2015, um stöðugleikaskatt, og skal því arðgreiðslum og söluandvirði bankans ráðstafað til niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs.
Arion banki hf. (13% eignarhlutur ríkisins)
- Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og mun salan að öllum líkindum eiga sér stað í tengslum við sölu meirihlutaeigandans og skráningu bankans á hlutabréfamarkað.
- Ríkissjóður á um 84 milljarða króna skuldabréf á Kaupþing ehf. með veði í 87% hlut í Arion. Verði skuldabréfið ekki greitt lok janúar 2018 færist Arion banki að öllu leyti til ríkisins. Einnig er í gildi ábataskiptasamningur sem felur í sér greiðslur til ríkissjóðs seljist Arion banki á tilteknu verði.
Sparisjóður Austurlands hf. (49,5% eignarhlutur ríkisins)
- Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins um leið og hægt er enda ekki markmið ríkisins að vera eigandi sparisjóðsins til langframa.