Brynjar styður ekki heldur jafnlaunavottun

Fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins ætla ekki að styðja jafnlaunavottun, sem er frumvarp ríkisstjórnarinnar og er kveðið á um í stjórnarsáttmálanum.

BrynjarN.elsson.47.jpg Brynjar Nielsson
Auglýsing

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að styðja fyr­ir­hugað rík­is­stjórn­ar­frum­varp um jafn­launa­vott­un. Þetta kemur fram í sam­tali við hann á mbl.is. Brynjar er annar þing­maður flokks­ins sem seg­ist ekki ætla að styðja frum­varp­ið, en auk hans hefur Óli Björn Kárson sagst ekki ætla að styðja frum­varp­ið. Þá lýsti Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra einnig yfir efa­semdum um kyn­bund­inn launa­mun og jafn­launa­vottun í grein í síð­ustu viku. 

„Ég held að þetta sé bara van­hugsað og menn séu að gefa sér rangar for­send­ur,“ segir Brynjar í sam­tali við mbl.­is. Hann seg­ist ekki munu styðja frum­varp­ið. Ef fara eigi í svona mikið inn­grip í rekstur fyr­ir­tækja sé lág­mark að fyrir liggi án nokk­urs vafa að raun­veru­legt vanda­mál sé fyrir hendi. „Það er auð­vitað meg­in­for­sendan ef ætl­unin er að fara út í svona inn­grip að vanda­mál sem ætl­unin er að leysa sé örugg­lega til stað­ar. Það er alveg frum­for­send­an....Þetta er bara ein­hver vit­leysa. Ég vona að menn end­ur­skoði þetta.“ 

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mun leggja frum­varpið um jafn­launa­vottun fram á þingi í vor fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Frum­varpið er í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar og kveðið er á um það í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar. 

Auglýsing

Í Silfr­inu á RÚV í gær hvatti Þor­steinn til þess að þing­menn biðu eftir frum­varp­inu og tækju þá afstöð­u. „Allar rann­sóknir sýna þennan launa­mun og að gliðni í sundur með kynj­unum eftir því sem líður á starfs­aldur þeirra,“ sagði hann í þætt­in­um, og að með frum­varp­inu vilji hann varpa ábyrgð­inni á launa­mun yfir á stjórn­endur í fyr­ir­tækj­u­m. 

Jafn­launa­vottun var eitt helsta bar­áttu­mál Við­reisnar fyrir kosn­ing­ar, og flokk­ur­inn hét því að frum­varp um slíka vottun yrði for­gangs­mál. Eftir að slitn­aði upp úr fyrstu til­raun núver­andi rík­is­stjórn­ar­flokka til að mynda rík­is­stjórn greindi Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, frá því að lög­fest­ing jafn­launa­vott­unar hafi ekki hlotið mik­inn hljóm­grunn meðal Sjálf­stæð­is­manna í við­ræð­u­m. „Því er ekki að leyna að þetta jafn­­rétt­is­­mál hlaut ekki mik­inn hljóm­­grunn í við­ræðum við Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn um helg­ina ekki frekar en sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­mál­in.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None