Kjarasamningum verður ekki sagt upp

Kjarasamningi á almennum vinnumarkaði verður ekki sagt upp, jafnvel þó ein forsenda samningsins sé brostin.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Auglýsing

Alþýðu­sam­band Íslands hefur ákveðið að segja ekki upp núgild­andi kjara­samn­ingi á almennum vinnu­mark­aði. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef ASÍ að und­an­gengnum fund­ar­höldum í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna.

Samn­inga­nefndir ASÍ og Sam­taka Atvinnu­lífs­ins fund­uðu í dag vegna end­ur­skoð­unar kjara­samn­inga og mátu for­sendur kjara­samn­ing­anna enda er síð­asti dagur í dag til að end­ur­skoða kjara­samn­ing­anna, fram á næsta ár.

Að mati for­sendu­nefndar ASÍ og SA standa tvær for­send­anna enn, en ein er brost­in. Sú sem er brostin að mati nefnd­ar­innar er „mat á því hvort sú launa­stefna og þær launa­hækk­anir sem í samn­ingnum fólust hafi verið stefnu­mark­andi fyrir aðra á vinnu­mark­aði (32% hækkun frá nóv 2013-des 2018).“

Auglýsing

Til­kynn­ing ASÍ í heild sinni:

„Nið­ur­staða for­sendu­nefndar ASÍ og SA vegna end­ur­skoð­unar kjara­samn­inga er að tvær af þremur for­sendum stand­ast en ein gerir það ekki. Sú snýst um launa­þróun ann­arra hópa. Samn­inga­nefnd ASÍ hefur engu að síð­ur, m.a. að und­an­gengnum fund­ar­höldum í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna, ákveðið að segja ekki upp núgild­andi kjara­samn­ingi.

For­send­urnar sem voru til skoð­unar eru þess­ar:

  1. Fjár­mögnun stjórn­valda á stofn­fram­lögum rík­is­ins til 2.300 almennra íbúða á árunum 2016-2019 eða að hámarki 600 á ári.
  2. Mat á því hvort sú launa­stefna og þær launa­hækk­anir sem í samn­ingnum fólust hafi verið stefnu­mark­andi fyrir aðra á vinnu­mark­aði (32% hækkun frá nóv 2013-des 2018).
  3. Auk­inn kaup­máttur á samn­ings­tím­an­um.

Ljóst er að liðir 1 og 3 stand­ast skoðun en liður 2 er for­sendu­brestur eins og áður seg­ir. Er það mat samn­inga­nefndar ASÍ að ákveðin verð­mæti séu í núgild­andi samn­ingi (4,5% almenn launa­hækkun 1. maí og hækkun á mót­fram­lagi atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð um 1,5% 1. júlí) auk þess sem lít­ill áhugi er á því að almenni mark­að­ur­inn fari fyrstur í þeim kjara­við­ræðum sem framundan eru, en mörg opin­beru félag­anna eru með lausa samn­inga síðar á þessu ári.“

Tvö­földun stofn­fram­laga

Líkt og fram kom hér að framan var eitt atrið­anna sem var til skoð­unar fjár­mögnun stjórn­valda á stofn­fram­lögum rík­is­ins til 2.300 almennra íbúða. Á fundi sem for­svars­menn ASÍ héldu með ráð­herrum úr rík­is­stjórn­inni í síð­ustu viku var kallað skýrt eftir efndum í hús­næð­is­mál­um. Ekk­ert væri fyr­ir­sjá­an­legt um slíkar í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar né fjár­lögum árs­ins 2017.

Sam­þykkt var svo á fundi rík­is­stjórn­ar­innar síð­ast­lið­inn föstu­dag að tvö­falda stofn­fram­lög úr rík­is­sjóði inn í þennan mála­flokk. „Á fjár­lögum árs­ins 2017 eru 1.500 millj­ónir merktar til stofn­styrkja inn í almenna íbúð­ar­kerf­ið. Við munum tryggja allt að 1.500 millj­ónum króna til við­bótar inn í það kerfi. Það var sam­þykkt í rík­is­stjórn í dag þannig að þetta verða allt að þrír millj­arðar króna sem fara í stofn­fram­lög inn í þennan mála­flokk á þessu ári,“ sagði Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, við Kjarn­ann á föstu­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None