Borgun: Beittum sambærilegum aðferðum og tíðkast á EES-svæðinu

Borgun hafnar því að hafa stóraukið umsvif sín erlendis með viðskiptum við aðila sem önnur fyrirtæki hafa forðast.

Borgun nýtt
Auglýsing

Borgun telur sig hafa farið að lögum og fram­kvæmt áreið­an­leikakann­anir á við­skipta­vinum sam­kvæmt „verk­lags­hefð á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu þegar sam­bæri­leg við­skipti eru ann­ars veg­ar,“ að því er segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Þá er því alfarið hafnað að stór­aukin umsvif Borg­unar utan­lands teng­ist vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vilja ekki sinna. 

Eins og greint hefur verið frá, þá hefur FME vísað málum til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem nú fer fram grein­ing­ar­vinna og rann­sókn á því, hvort ástæða sé til frek­ari aðgerða, þar með talið útgáfa ákæru. Íslands­banki, stærsti eig­andi Borg­un­ar, hefur form­lega kraf­ist skýr­inga á mál­inu af hálfu Borg­un.

Auglýsing




Í til­kynn­ing­unni frá Borgun seg­ir:  „Borgun telur sig hafa fram­kvæmt áreið­an­leika­kannir á við­skipta­vinum sam­kvæmt verk­lags­hefð á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu þegar sam­bæri­leg við­skipti eru ann­ars veg­ar. FME hefur hins vegar gert athuga­semdir við hvernig gagna hefur verið aflað og hvernig áreið­an­leiki þeirra hefur verið tryggð­ur. Borg­un  tekur athuga­semdum FME alvar­lega eins og fram kom í yfir­lýs­ingu Borg­unar sl. föstu­dag. Fyr­ir­tækið mun tryggja í sam­starfi við FME að starf­semin full­nægi ítr­ustu skil­yrðum laga m.t.t. könn­unar á áreið­an­leika við­skipta­manna og skyldum þátt­u­m. Unnið er að inn­leið­ingu þeirra ráð­staf­ana, sem Borgun þarf að grípa til, og stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borg­unar til að upp­fylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mán­aða. Rangt er að Borgun hafi ekki fram­fylgt fyr­ir­mælum FME. Borgun hefur þegar sagt upp öllum við­skiptum sem FME gerði kröfu um að yrði sagt upp. 

Rang­lega hefur verið full­yrt að stór­aukin um­­svif  Borg­unar utan­lands teng­ist vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vilji ekki sinna. 

Borgun hefur starfað á alþjóð­legum greiðslu­miðl­un­ar­mark­aði frá því um árið 2000. Við­skiptin hafa vaxið jafnt og þétt á síð­ustu árum. Fyr­ir utan hefð­bundna smá­sölu­verslun þá vegur eng­inn ein­stak­ur við­skipta­­flokk­ur meira en um það bil 2% af heild­­ar­við­skipt­um Borg­un­­ar. Áhætt­an af við­skipta­­flokk­um er mis­­­mik­il og af mis­mun­andi ástæð­um, svo sem end­ur­kröfu­á­hætta, orð­spors­á­hætta og upp­gjörs­á­hætta. Borgun upp­fyllir öll skil­yrði alþjóð­legu korta­fé­lag­anna í starf­semi sinn­i. 

Á und­an­­förn­um árum hef­ur Borg­un lagt megin áherslu utan Íslands á al­­menna smá­­sölu­versl­un í Ung­verja­landi, Tékk­landi og Bret­landi, auk sér­­hæfðrar greiðslu­miðl­un­ar svo sem sjálf­sala og fleira. Borg­un þjón­ar nú þús­undum við­skipta­vina á þess­um svæðum og u.þ.b. 25 þús­und sjálf­­sö­lum í Evr­ópu,“ segir í til­kynn­ingu Borg­un­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None