Eignir Landsvirkjunar 455 milljarður – Hagnaður minnkar milli ára

Rekstur Landsvirkjunar versnaði milli ára, en forstjórinn segir niðurstöðu ársins ásættanlega.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Auglýsing

Hagn­aður Lands­virkj­unar í fyrra nama 66 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um sjö millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi (Banda­ríkja­dalur = 106 ISK). Ávöxtun eigin fjár Lands­virkj­unar var því 3,3 pró­sent í fyrra, sem telst fremur lágt í alþjóð­legum sam­an­burði sam­bæri­legra fyr­ir­tækja.

Árið 2015 var hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins 84,2 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða tæpir 9 millj­arð­ar, og er því lækkun á hagn­aði milli ára. 

Eigið fé Lands­virkj­unar nam í árs­lók tæp­lega 2 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 212 millj­örðum króna. 

Auglýsing

Sé mið tekið af því, að verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu sé um tvö­fal til þrefalt eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins, þá er verð­mið­inn á bil­inu 424 til 636 millj­arðar króna, miðað við núver­andi geng­i. 

Hand­bært fé frá rekstri nam 229,8 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 24,2 millj­örðum króna. Þetta er 7,7 pró­sent lækkun frá 2015.

Hér má sjá hvernig afborgunartíminn er á skuldum Landsvirkjunar, í þúsundum Bandaríkjadala talið.

Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, segir í frétta­til­kynn­ingu vegna upp­gjörs­ins að rekstr­ar­nið­ur­staðan sé ásætt­an­leg, þrátt fyrir að hún sé lak­ari en árið á und­an. „Ytri aðstæður voru ekki hag­felldar á árinu 2016. Álverð var áfram lágt, þótt það hafi farið hækk­andi á seinni hluta árs­ins. Enn eru tekjur okkar að nokkru leyti bundnar við álverð. Þá minnk­aði selt magn milli ára þvert á áætl­an­ir, vegna rekstr­ar­vanda við­skipta­vina. Þrátt fyrir þetta héld­ust tekjur nærri óbreyttar milli ára. Sterkt sjóð­streymi gerði meira en að standa undir fram­kvæmdum við nýja vatns­afls­virkjun Búr­fell II og jarð­varma­virkjun við Þeista­reyki. Það er ánægju­legt að geta unnið að þess­ari upp­bygg­ingu og hækka ekki skuld­ir, heldur þvert á móti lækka þær. Lækkun skulda á und­an­förnum árum er að skila sér í auknum mæli í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins en það sést á veru­legri lækkun vaxta­gjalda milli ára. Láns­hæf­is­ein­kunn Lands­virkj­unar hækk­aði um einn flokk í jan­úar 2017 og hefur fyr­ir­tækið hækkað um þrjá flokka á síð­ustu árum. Fyr­ir­tækið er í fjár­fest­ing­ar­flokki án rík­is­á­byrgðar og nálg­ast nú sam­bæri­leg fyr­ir­tæki í nágranna­lönd­unum að þessu leyt­i,“ segir Hörð­ur.

Á und­an­förnum mán­uðum hefur álver hækkað nokk­uð, og horfur því tölu­vert betri á álmörk­uð­um. Með­al­verð á tonn er nú um 1.900 Banda­ríkja­dalir en það var um 1.600 Banda­ríkja­dalir á síð­asta ári, að með­al­tali. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None