37 einstaklingar sóttu um embætti 15 dómara við Landsrétt, sem tekur til starfa í upphafi næsta árs. Fjórtán konur og 23 karlar sóttu um embættin, en listann yfir umsækjendur má sjá hér að neðan.
Tíu héraðsdómarar sækja um embætti við Landsrétt og þrír dómstjórar við héraðsdómstóla að auki. Þá sækir einn settur hæstaréttardómari um embætti, Ingveldur Einarsdóttir.
Þekktir lögmenn á borð við Vilhjálm H. Vilhjálmsson, Jóhannes Rúnar Jóhannsson og Guðrúnu Sesselju Arnardóttur sækja um. Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður sækja um, og það gera nokkrir fræðimenn við lagadeildir landsins einnig. Þá er Höskuldur Þórhallsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, meðal umsækjenda.
Eftirtaldir sóttu um embætti:
- Aðalsteinn E. Jónasson, hæstaréttarlögmaður
- Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari
- Ásmundur Helgason, héraðsdómari
- Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður
- Baldvin Hafsteinsson, hæstaréttarlögmaður
- Björn Þorvaldsson, sviðsstjóri ákærusviðs efnahagsbrota hjá embætti héraðssaksóknara
- Bogi Hjálmtýsson, héraðsdómari
- Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu
- Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
- Davor Purusic, lögfræðingur hjá Rauða krossi Íslands
- Eiríkur Jónsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
- Guðjón St. Marteinsson, héraðsdómari
- Guðrún Sesselja Arnardóttir, hæstaréttarlögmaður
- Helgi Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
- Hervör Þorvaldsdóttir, héraðsdómari
- Hildur Briem, dómstjóri við Héraðsdóm Austurlands
- Höskuldur Þórhallsson, fyrrverandi alþingismaður
- Ingveldur Einarsdóttir, settur hæstaréttardómari
- Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
- Jóhannes Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
- Jón Finnbjörnsson, héraðsdómari
- Jón Höskuldsson, héraðsdómari
- Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
- Karl Óttar Pétursson, hæstaréttarlögmaður
- Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður
- Nanna Magnadóttir, forstöðumaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
- Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
- Ólafur Ólafsson, dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands eystra
- Ómar Stefánsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
- Ragnheiður Bragadóttir, héraðsdómari
- Ragnheiður Harðardóttir, héraðsdómari
- Sandra Baldvinsdóttir, héraðsdómari
- Sigurður Tómas Magnússon, atvinnulífsprófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík
- Soffía Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður
- Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður
- Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjaness
- Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík