Samkvæmt nýjum reglum um hæfismat framkvæmdastjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja er það ekki lengur skilyrði að stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri í slíkum fyrirtækjum þurfi að hafa háskólapróf sem nýtist í starfi. Stjórn Fjármálaeftirlitsins saþykkti nýju reglurnar á fundi sínum þann 8. febrúar síðastliðinn.
Áfram verður þó gerð krafa um að þeir sem sinni umræddum störfum hafi þekkingu og reynslu eða að þeir hafi lokið námi sem nýtist í starfi. Þá er sérstaklega tilgreint að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar skuli hafa þekkingu á áhættuþáttum í starfsemi fjármálafyrirtækis.
Önnur breyting sem gerð var á reglunum er sú að nú er sett fram skilyrði um gott orðspor í stað óflekkaðs mannorðs og að stjórnarmaður hafi ekki sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að draga í efa hæfni hans.
Hinar nýju reglur taka mið af þeim lagabreytingum sem hér um ræðir, reynslu Fjármálaeftirlitsins af beitingu eldri reglna, þróun og fyrirmyndum frá Evrópu sem og þeim athugasemdum sem fram komu í umsagnarferli. Reglurnar voru birtar í Stjórnartíðindum þann 23. febrúar 2017.