Hannes Smárason hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri líftæknifélagsins WuXi NextCODE. Áður sat Hannes í stjórn félagsins, frá þessu segir í fréttatilkynningu NextCODE.
Fyrirtækið varð til við sameiningu NextCODE, dótturfélags Íslenskrar erfðagreiningar, við félagið WuXi Genome Center. Það gerðist í kjölfarið á yfirtöku félagsins WuXi AppTec á NextCODE árið 2015 en kaupverðið hljóðaði upp á átta og hálfan milljarð króna.
„Það eru spennandi tíma framundan,“ segir Hannes í fréttatilkynningu.
Líftæknifélagið WuXi NextCODE er með starfsemi hér á landi auk þess að vera með starfsemi í Shanghai í Kína og í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Hannes átti aðkomu að stofnun sprotafyrirtækisins NextCODE árið 2013. Þá hafði hann umsjón með því þegar sameining þess við Wuxi Genome Center átti sér stað og félagið WuXi NextCODE var sett á laggirnar.