Skýrslu um gjaldeyriseftirlit Seðlabankans var skilað fyrir áramót

Seðlabanki Íslands hefur ekki viljað veita aðgang að skýrslu um stjórnsýsluúttekt sem Lagastofnun Háskóla Íslands vann á gjaldeyriseftirliti bankans fyrir bankaráð hans. Líklegt þykir að niðurstaðan kalli á frekari rannsókn á eftirlitinu.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Banka­ráð Seðla­banka Íslands lét Laga­stofnun Háskóla Íslands vinna stjórn­sýslu­út­tekt á gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Skýrsl­unni var skilað skömmu fyrir síð­ustu ára­mót, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Við gerð skýrsl­unnar voru skoðuð nokkur dæmi um aðila sem höfðu verið til með­ferðar hjá eft­ir­lit­inu, en alls skipta þeir sem þurftu á und­an­þágum þess að halda á hafta­ár­unum frá hruni þús­und­um. Á meðal þeirra dæma sem voru skoðuð voru mál Sam­herja, útgerð­ar­fyr­ir­tækis sem var ítar­lega rann­sakað af gjald­eyr­is­eft­ir­lit­inu vegna gruns um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans benda nið­ur­stöður úttekt­ar­innar til þess að skoða þurfi fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins betur og hefur það verið rætt innan banka­ráðs Seðla­banka Íslands. Nýtt banka­ráð hefur hins vegar ekki verið skipað eftir síð­ustu þing­kosn­ingar og því er talið lík­legra en ella að ákvörðun um næstu skref bíði nýs banka­ráðs. Í því skrefi felst að leggja mat á nið­ur­stöður úttekt­ar­innar og ákveða hvað eigi að gera næst.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að Sam­herji hefði kraf­ist þess með áskorun fyrir dómi að fá afhentar upp­lýs­ingar um mál­efni sem snúa að rann­sóknum og aðgerðum Seðla­banka Íslands gagn­vart fyr­ir­tæk­inu, sem er að finna í úttekt Laga­stofn­un­ar. Lög­maður Sam­herja hafði þá krafið Seðla­bank­ann um afrit af úttekt­inni, en án árang­urs.

Auglýsing

Margra ára rann­sókn á Sam­herja

Í sept­­em­ber 2015 felldi emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara niður mál gegn Þor­­steini Má Bald­vins­­syni, for­­stjóra Sam­herja, og þremur öðrum lyk­il­­starfs­­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, sem Seðla­­banki Íslands hafði vísað til emb­ætt­is­ins. Seðla­­bank­inn vís­aði mál­inu til emb­ætt­is­ins á grund­velli þess að þeir hefðu brotið gegn lögum um gjald­eyr­is­­mál.

Málið hófst með hús­­leitum í starfs­­stöð Sam­herja á Akur­eyri og í Reykja­vík, í mars 2012.

Eftir að mál­inu lauk, hefur Sam­herji sótt á Seðla­­bank­ann og hefur Þor­­steinn Már ítrekað sagt að ein­hver verði að axla ábyrgð vegna þess­­ara aðgerða gegn Sam­herja, þar sem fyr­ir­tækið hefði ekki brotið gegn lög­­um, eins og nú hefur verið stað­­fest.

Þor­­steinn Már hefur þegar kært tvo yfir­­­menn í Seðla­­bank­­anum vegna máls­ins til lög­­regl­unnar á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, þau Arnór Sig­hvats­­son aðstoð­­ar­­seðla­­banka­­stjóra og Ing­i­­björgu Guð­­bjarts­dótt­­ur, fram­­kvæmda­­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans.

Byggir kæran meðal ann­­ars á því að þau hafi ekki aðeins komið „rang­­­færsl­um, vill­andi mála­til­­­bún­­­aði og ófull­nægj­andi upp­­­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­­­lýs­ingum til emb­ættis sér­­­staks sak­­­sókn­­­ara við rann­­­sókn í saka­­­máli emb­ætt­is­ins“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None