Kærir toppa í Seðlabankanum vegna gjaldeyrismálsins

Þorsteinn Már Baldvinsson telur yfirmenn í Seðlabankanum hafa brotið á sér.
Þorsteinn Már Baldvinsson telur yfirmenn í Seðlabankanum hafa brotið á sér.
Auglýsing

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, hefur kært tvo yfir­menn í Seðla­bank­anum fyrir að hafa leit­ast við að koma rang­færslum til leiðar sem yrðu til þess að Þor­steinn Már yrði sak­aður um eða dæmdur fyrir refsi­verðan verkn­að. Morg­un­blaðið greinir frá þessu í dag.

Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur borist kæra frá lög­manni Þor­steins Más á hendur Arn­órs Sig­hvats­sonar aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­bjargar Guð­bjarts­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Þau hafi ekki aðeins komið „rang­færsl­um, vill­andi mála­til­bún­aði og ófull­nægj­andi upp­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­lýs­ingum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við rann­sókn í saka­máli emb­ætt­is­ins“.

Um er að ræða kæru Seðla­bank­ans á hendur Þor­steins Más til sér­staks sak­sókn­ara 9. sept­em­ber 2009 þar sem honum var gefið að sök að hafa brotið gegn gjald­eyr­is­lögum með því að van­rækja skil á erlendum gjald­eyri sem Sam­herji eign­að­ist á tíma­bil­inu 28. nóv­em­ber 2008 til 27. mars 2012. Arnór og Ingi­björg und­ir­rit­uðu kæruna fyrir hönd Seðla­banka Íslands.

Auglýsing

Málið á hendur Þor­steini Má og þremur öðrum starfs­mönnum Sam­herja var fellt niður í sept­em­ber í fyrra. Þá hafði Þor­steinn Már marg­ít­rekað sak­leysi sitt og Sam­herja í mál­inu og sagt gögnin sem hann hefði séð frá Seðla­bank­anum vera á mis­skiln­ingi og van­kunn­áttu byggð.

Þor­­steinn sagði í fyrra í sam­tali við Vísi að mál­ið hefði haft gríð­­ar­­legt tjón í ­för með­ ­sér fyrir fyr­ir­tæk­ið en rann­­sóknin stóð ­yf­­ir­ í á fjórða ár, eða frá því mars 2012.

Málið hófst með hús­­leitum sem starfs­­menn Seðla­­bank­ans fram­­kvæmdu í höf­uð­­stöðvum Sam­herja bæð­i á Ak­­ur­eyri og í Reykja­vík. Hús­­leit­irnir voru fram­­kvæmdar á grund­velli grun­­semda um brot á lögum um gjald­eyr­is­­mál.

Í fram­haldi af rann­­sókn kærði Seðla­­bank­inn Sam­herja og tengd fyr­ir­tæki fyrir brot gegn gjald­eyr­is­lögum til sér­­staks sak­­sókn­­ara, en svo kom í ljós að ekki var heim­ilt sam­­kvæmt lag­anna bók­staf að kæra fyr­ir­tækin fyrir brot á lög­­unum sem um ræddi.

Í fram­hald­inu kærði bank­inn ein­stak­l­inga innan fyr­ir­tæk­is­ins, það er Þor­­stein Má Bald­vins­­son for­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og ­þrjá aðra lyk­il­­starfs­­menn fyrir að brjóta gegn gjald­eyr­is­höft­un­um, að því er segir í frétt Vís­­is.

Meint brot vörð­uðu sektum eða allt að t­veggja ára afang­elsi. Við tók rann­­sókn á ­mál­inu sem sem lauk ekki fyrr en á vor­mán­uðum árs­ins 2015.

Morg­un­blaðið greinir frá því að í kærunni sé bent á að meint brot starfs­manna bank­ans varði allt að 10 ára fang­elsi og refsi­auka um að minnsta kosti 2 ár ef sannað er að þeir hafi ætlað vel­ferð­ar­missi fyrir þol­anda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None