Bezos jók virði eigna sinna um 8 milljarða á dag

Óhætt er að segja að uppgangurinn hjá Amazon hafi komið sér vel fyrir stofnandann og forstjórann, Jeff Bezos.

Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon.
Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon.
Auglýsing

Árið 2016 var ótrú­legt ár fyrir hinn 56 ára gamla Jeff Bezos, stofn­anda og for­stjóra Amazon. Hrein eign hans jókst um 27 millj­arða Banda­ríkja­dala og stóð í 75 millj­örðum Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 8.200 millj­örðum króna. 

Ein­ungis 24 rík­ustu menn heims eiga meiri eignir en sem nemur þess­ari árlegu aukn­ingu hjá Bezos, sem nú er þriðji rík­asti maður heims á eftir War­ren Buf­fett og Bill Gates.

Eignir Bezos eru að miklu leyti bundnar í hluta­bréfum í Amazon en hann á tæp­lega 17 pró­sent í smá­sölu- og tækniris­an­um. Amazon varð á árinu 2016 það fyr­ir­tæki sem nær því á stystum tíma, að afla meira en 100 millj­arða Banda­ríkja­dala í tekjur á einu ári. 

Auglýsing

Bezos er einnig eig­andi Was­hington Post, Blue Orig­in, geim­vís­inda­fyr­ir­tæk­is­ins, og fleiri fyr­ir­tækja. Hann hefur rekið Amazon síðan árið 1994 en þá hætti hann störfum hjá vog­un­ar­sjóði í New York og hóf að selja bækur í gegnum net­ið. Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síð­an, því Amazon er nú mitt í ævin­týra­legu vaxt­ar­skeið­i. 



Fyr­ir­tækið ætlar sér miklu stærri hluti á smá­sölu­mark­aði, og er þar að auki að þróa ýmsar tækninýj­ungar á sviði gervi­greind­ar. Í lok síð­asta árs voru starfs­menn á Seatt­le-­svæð­inu, þar sem fyr­ir­tækið er með höf­uð­stöðv­ar, 35 þús­und tals­ins, en í lok árs 2019 verða þeir yfir 70 þús­und, sam­kvæmt vaxt­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins. Mesta fjölg­unin verður þó ann­ars staðar í Banda­ríkj­unum en fyr­ir­tækið vinnur nú að efl­ingu á sölu­neti sínu með bygg­ingu vöru­húsa vítt og breitt um Banda­rík­in. 

Bezos hefur sagt að stefnan sé sú að ráða 100 þús­und nýja starfs­menn á næstu átján mán­uð­um, sem verða starf­andi í vöru­húsum fyr­ir­tæk­is­ins. Ráðn­ing­arnar eru liður í und­ir­bún­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir stig­vax­andi heim­send­ing­ar­þjón­ustu í smá­sölu­við­skipt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None