Teitur Björn vill skoða lækkun veiðigjalda

Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að lækkun veiðigjalda hljóti að vera „einn valkostur sem er í stöðunni“. Veiðigjöld hafa lækkað um átta milljarða króna. Eigið fé sjávarútvegs hefur aukist um yfir 300 milljarða króna frá árslokum 2008.

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, vill að lækkun á veiði­gjöldum á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki verði skoð­uð. Veiði­gjöld hafa lækkað um átta millj­arða króna á örfáum árum á sama tíma og sjáv­ar­út­vegur sem heild hefur farið í gegnum nær for­dæma­laust hagn­að­ar­skeið. Eigið fé atvinnu­grein­ar­innar jókst um rúm­lega 300 millj­arða króna frá árinu 2008 til árs­loka 2015 þrátt fyrir að eig­endur útgerða hefðu greitt sér út 54,3 millj­arða króna í arð á tíma­bil­inu.

Teitur tók til máls undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Þar fjall­aði hann um þá ákvörðun HB Granda að hætta bol­fisksvinnslu í starfs­stöð sinni á Akra­nesi og sagði:  „Í stærra sam­hengi hluta er því miður hætt við því að þetta sé ekki ein­angrað til­vik sem um ræð­ir. Mikil hækkun launa, veru­leg styrk­ing krón­unn­ar, háir vextir setja fjöl­margar fisk­vinnslur í veru­legan vanda víða um land og það er ekki hægt að horfa fram hjá því að gjöld á atvinnu­veg­inn umfram aðrar útflutn­ings­greinar eru íþyngj­andi, gjöld sem leggj­ast sér­stak­lega þungt á lítil og með­al­stór fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni. Ef það er raun­veru­legur vilji til þess að treysta atvinnu­skil­yrði, auka starfs­ör­yggi starfs­fólks og auka byggða­festu hlýtur lækkun þeirra að vera einn val­kostur sem er í stöð­unn­i.“

Hagn­að­ur­inn 45,4 millj­arðar á einu ári

Hagn­aður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fyrir afskrift­ir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt á árinu 2015 var tæp­lega 70 millj­arðar króna. Hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs var 45,4 millj­arðar króna á því ári þegar búið var að standa skil á öllum kostn­aði. Sam­an­lagt skil­aði íslenskur sjáv­ar­út­vegur hreinum hagn­aði upp á 287 millj­arða króna á sjö ára tíma­bili, frá 2009 til loka árs 2015.

Veiði­gjald útgerð­ar­innar fór úr 9,2 millj­örðum fisk­veiði­árið 2013/2014 í 7,7 millj­arða fisk­veiði­árið 2014/2015. Í reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna er veiði­gjaldið talið með öðrum rekstr­ar­kostn­aði og því er búið að taka til­lit til þess þegar hreinn hagn­aður er reikn­aður út. Á fisk­veiði­ár­inu 2015/2016 voru þau áætluð 7,4 millj­arðar króna og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári er það áætlað 4,8 millj­arðar króna. Það er um átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013, þegar þau voru 12,8 millj­arðar króna. Veiði­gjöldin sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs hafa því lækkað um átta millj­arða króna á sama tíma og fyr­ir­tækin hafa hagn­ast með for­dæma­lausum hætti.

Algjör við­snún­ingur

Eigið fé íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja var rúm­lega 220 millj­arðar króna í lok árs 2015. Það var nei­kvætt um 80 millj­arða króna í lok árs 2008 og jókst því um rúm­lega 300 millj­arða króna frá þeim tíma. Þá á eftir að taka til­lit til þeirra 54,3 millj­arða króna sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa greitt sér út í arð frá byrjun árs 2010 og til loka árs 2015, enda hafa þeir pen­ingar verið greiddir út úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum til eig­enda þeirra. Alls voru 38,2 millj­arðar króna greiddir í arð árin 2013, 2014 og 2015.

Auglýsing

Þegar sú upp­hæð er lögð saman við eigið féð hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um rúm­lega 354 millj­arða króna á örfáum árum.

Ytri skil­yrði voru atvinnu­veg­inum mjög hag­stæð á árinu 2015. Verð sjáv­ar­af­urða á erlendum mörk­uðum í íslenskum krónum hækk­aði um 6,5 pró­sent frá fyrra ári og verð á olíu í íslenskum krónum lækk­aði að með­al­tali um 17 pró­sent á milli ára. Gengi dollar­ans styrk­ist um 12,9 pró­sent en gengi evr­unnar seig um 5,5 pró­sent á milli ára. „Út­flutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­út­vegs í heild jókst um 8,5 pró­sent, og nam 265 millj­örðum króna á árinu 2015, verð á útflutn­ings­vörum í sjáv­ar­út­vegi hækk­aði um rúm 7 pró­sent og magn útfluttra sjáv­ar­af­urða jókst um rúmt 1 pró­sent.“

Ytri skil­yrðin voru hins vegar ekki jafn hag­stæð á árinu 2016 og það sem af er árinu 2017, vegna styrk­ingu krón­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None