Samkeppniseftirlitið styður endurskoðun áfengislaga

Samkeppniseftirlitið bendir á að á stuttum tíma hafi áfengiseinkasala gjörbreyst, og það án mikillar stefnumarkandi umræðu, hvorki um lýðheilsu né samkeppni.

Vínbúðin
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið er fylgj­andi því að núgild­andi fyr­ir­komu­lag við sölu áfengis verði end­ur­skoð­að. Þetta kemur fram í umsögn eft­ir­lits­ins um áfeng­is­frum­varpið svo­kall­aða, sem nú er til með­ferðar í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is. 

­Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur ekki að öðru leyti afstöðu til frum­varps­ins sem er til með­ferð­ar, en seg­ist fylgj­andi því að núgild­andi fyr­ir­komu­lag verði end­ur­skoð­að. Ástæðan er sú að áfeng­is­einka­sala hefur gjör­breyst á nokkrum árum, án þess þó að reglum hafi verið breytt.

„Hefur áfeng­is­einka­sala á skömmum tíma þró­ast úr því að vera stunduð á fáum stöðum á land­inu þar sem varan var afhent yfir borð, yfir í dreifðar og nýtísku­legar versl­an­ir, sem bjóða upp á mikið aðgengi neyt­enda, en leggja miklar tak­mark­anir á fram­leið­endur og inn­flytj­end­ur. Þessar miklu breyt­ingar á áfeng­is­sölu hafa átt sér stað án mik­illar stefnu­mark­andi umræðu, hvorki um und­ir­liggj­andi lýð­heilsu­m­ark­mið, né áhrif á sam­keppn­i,“ segir í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. 

Auglýsing

Með hlið­sjón af þessu vill eft­ir­litið að regl­urnar séu end­ur­skoð­að­ar. Mik­il­vægt sé að lög­gjaf­inn reyni að vernda sam­fé­lagið og ein­stak­linga frá þeirri vá sem neysla áfengis geti haft í för með sér, en til þess eigi að velja þær aðferðir sem skerði frjálsa sam­keppni sem minnst og falli best að sam­fé­lag­inu hverju sinn­i. 

Eft­ir­litið áréttar það í umsögn sinni að þótt mark­mið sam­keppn­islaga end­ur­spegli þá stað­reynd að sam­keppni í við­skiptum sé bæði æski­leg og nauð­syn­leg sé það við­ur­kennt að í sumum til­vikum þurfi að víkja frá frjálsri sam­keppni til að vernda til­tekna almanna­hags­muni. Lögin um einka­sölu áfengis séu dæmi um slík frá­vik frá sam­keppni, og regl­urnar eigi sér langa sögu og spretti úr allt öðru versl­un­ar­um­hverfi en því sem nú er við lýð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None