Það kemur til greina að loka verksmiðju United Silicon vegna mengunar frá starfseminni, segir Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra. Þetta kom fram í viðtali við hana á RÚV í kvöld.
Hún tók þar með undir orð Friðjóns Einarssonar, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, sem hefur krafist þess að kísilverinu verði lokað vegna arsenikmengunar. Umhverfisstofnun hefur takmarkað starfsemina meðan rannsókn fer fram en stöðvar hana ekki.
Eins og greint var frá fyrr í dag, þá hefur Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, beðist afsökunar á því að hafa greitt götu United Silicon. „Við sem töluðum fyrir uppbyggingu United Silicon í Helguvík og fögnuðum 500 milljón króna fjárfestingasamningi við félagið í apríl 2014 trúðum loforðum fyrirtækisins um fjölbreytt og vel launuð störf, góðan rekstur í sátt við lög og reglur. Okkur er illa brugðið,“ sagði Ásmundur í upphafi ræðu sinnar á þingi.
Björt sagðist í sjónvarpsfréttum RÚV hafa miklar áhyggjur af menguninni. „Það er mjög erfitt að sá þessa gamaldagsstefnu vera að raungerast hér enn og aftur og þó er árið 2017. En þetta er það sem fyrri ríkisstjórnir, allar, hafa haft á stefnuskránni hjá sér. Þær hafa veitt skattaafslætti til viðlíka starfsemi, mengandi starfsemi. Það er það sem við þurfum að fást við í dag,“ sagði Björt. Hún sagði núverandi ríkisstjórn hafa stigið stærsta græna skrefið til að veita ekki skattaafslætti til starfsemi sem þessarar.
Hún sagði koma til greina að láta loka starfseminni, ef ekki tækist að draga úr mengnun og laga það sem væri að.