Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur verið skipaður formaður ferðamálaráðs af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra ferðamála. Eva Björk Harðardóttir, verður varaformaður ráðsins. Frá þessu er greint í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.
Ferðamálaráð er skipað til fjögurra ára í senn en skipunartími formanns og varaformanns er takmarkaður við embættistíma ráðherra. Þær Unnur Valborg og Eva Björk taka við af Þórey Vilhjálmsdóttur og Páli Marvin Jónssyni sem skipaðar voru af Ragnheiði Elínu Árnadóttur, forvera Þórdísar Kolbrúnar í embætti.
Unnur Valborg var skipaði áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust. Þórdís Kolbrún skipaði annað sæti framboðslistans.
Unnur Valborg er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra rekur íbúðagistinguna Sólgarð á Hvammstanga og á og rekur fyrirtækið Aðstoðarmaður ehf. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og Diploma í viðskipta- og rekstrarfræðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í stjórnendamarkþjálfun frá Opna Háskólanum og Coach U.
Eva Björk er oddviti sveitarstjórnar Skaftárhrepps og hótelstjóri Hótels Laka í Efri-Vík skammt frá Kirkjubæjarklaustri, þar sem hún hefur um árabil rekið umsvifamikla ferðaþjónustu. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands.
Hlutverk ferðamálaráðs er að gera tillögur til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar og vera ráðherra til ráðgjafar um áætlanir í ferðamálum. Þá er ætlast til að ráðið vieti umsagnir um breytingar á lögum og reglum sem varða ferðamál.
Ráðið var síðast skipað í febrúar 2015 og hefur skipunartíma til ársins 2018. Í ferðamálaráði eiga eftirfarandi sæti auk nýs formanns og varaformanns: Halldór Benjamín Þorbergsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir og Þórir Garðarsson, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar. Aldís Hafsteinsdóttir og Hjálmar Sveinsson, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ásbjörn Björgvinsson og Díana Mjöll Sveinsdóttir, tilnefnd af Ferðamálasamtökum Íslands og Jón Ásbergsson, tilnefndur af Íslandsstofu.