Samherji undirritaði í gær lóðaleigusamning við Dalvíkurbyggð um 23.000 fermetra lóð undir nýtt húsnæði landvinnslu félagsins á Dalvík, en heildarumfang fjárfestingarinnar er áætlað um 3,5 milljarðar króna. „Með samningnum er stigið stórt skref í átt að nýrri og fullkomnari vinnslu Samherja á Dalvík. Flutningur starfsemi Samherja á hafnarsvæðið skapar jafnframt möguleika fyrir bæjarfélagið að skipuleggja svæðið með öðrum hætti til hagsbóta fyrir samfélagið í heild,“ segir í tilkynningu félagsins vegna þessa.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, opinberaði þessi áform fyrirtækisins á fjölmennum hátíðarfundi með starfsfólki Samherja á Dalvík og forsvarsmönnum Dalvíkurbyggðar. Hrósaði hann starfsfólki sérstaklega og það traust sem ríkti á milli þess, og einnig bæjaryfirvalda.
Í ræðu sinni á fundinum sagði að Samherji hefði tekið á móti nýjum Björgúlfi EA í Tyrklandi. Nýja skipið muni leysa hinn 40 ára gamla nafna sinn af hólmi og komi til heimahafnar á Dalvík í byrjun júní. „Með nýju vinnslunni og smíði Björgúlfs EA er Samherji að fjárfesta í veiðum og vinnslu á Dalvík fyrir a.m.k. sex milljarða. Heildarfjárfesting Samherja í veiðum og vinnslu í Eyjafirði verður því um ellefu milljarðar króna á einungis þremur árum,“ sagði Þorsteinn Már, að því er fram kemur í tilkynningu.
Óhætt er að segja að fjárhagsstaða Samherja sé sterk. Í lok árs 2015 var eigið fé félagsins yfir 80 milljarðar og hagnaðurinn 13,9 milljarðar.