Jón Ásgeir segir Grím hafa sýnt af sér „óheiðarleika á hæsta stigi“

Jón Ásgeir Jóhannesson endurtekur yfirlýsingu sína um að yfirlögregluþjónninn Grímur Grímsson sé óheiðarlegur og segir að í Bandaríkjunum geti rannsakendur eins og hann átt „yfir höfði sér fangelsisdóma“.

jon-asgeir-3.jpg
Auglýsing

Jón Ásgeir Jóhann­es­son segir að Grímur Gríms­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hafi sýnt af sér það sem honum finnst vera „óheið­ar­leiki á hæsta stigi þegar rann­sak­endur halda undan gögnum sem benda til sak­leysis þeirra sem eru ákærð­ir. Í Banda­ríkj­un­um ­gætu slíkir rann­sak­endur átti yfir höfði sér fang­els­is­dóma.“  

Þetta kemur fram á heima­síðu sem Jón Ásgeir setti nýverið upp til að koma á fram­færi mál­flutn­ingi sínum í ýmsum málum sem að honum snúa. Ýmsir aðrir athafna­menn sem hafa þurft að takast á við umdeild mál hafa einnig farið sömu leið. Nægir þar að nefna Björgólf Thor Björg­ólfs­son og Ólaf Ólafs­son. Auk þess héldu ýmsir fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings úti síðu um nokk­urt skeið, en hún hefur ekki verið upp­færð í nokkra mán­uði.

Ástæða þess að Jón Ásgeir skrifar um Grím nú er við­tal sem yfir­lög­reglu­þjónn­inn fór í á RÚV um liðna helgi. Þar var hann spurður um opið bréf sem Jón Ásgeir birti í Frétta­blað­inu, dag­blaði sem er að mestu í eigu eig­in­konu hans, fyrir þremur árum síð­an. Í bréf­inu sak­aði Jón Ásgeir Grím og annan lög­reglu­mann, Svein Ingi­berg Magn­ús­son, um óheið­ar­leika. Jón Ásgeir sagði menn­ina tvo hafa farið fremsta í flokki í rann­sóknum á sér á und­an­förnum árum. Orð­rétt sagði í bréf­inu: „Ég leyfi mér að vona að fleiri jafn óheið­ar­legir lög­reglu­menn fyr­ir­finn­ist ekki hér á land­i.“

Auglýsing

Grímur sagði að hann hafi orðið ósáttur þegar ásökun Jóns Ásgeirs var lögð fram. „Mér lík­aði það ekki. Hvorki ég né vinnu­fé­lagi minn erum óheið­ar­legir og mér líkar það ekki vel þegar slíkt er sagt opin­ber­lega.“

Með svar­grein sinni birtir Jón Ásgeir ýmis gögn sem hann telur að rann­sak­endum hafi borið að leggja fram við þing­fest­ingu á Aur­um-­mál­inu svo­kall­að, þar sem hann er einn ákærðra. Það mál er enn fyrir dóm­stól­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent