Hagvöxtur 5% á fyrsta ársfjórðungi

Hagvöxtur fyrir fyrsta ársfjórðung árið 2017 mælist um 5%, en hann er að mestu leyti drifinn áfram af einkaneyslu.

Íbúðafjárfesting jókst um 29% á fyrsta ársfjórðungi 2017.
Íbúðafjárfesting jókst um 29% á fyrsta ársfjórðungi 2017.
Auglýsing

Hag­vöxtur fyrsta árs­fjórð­ungs 2017 mæld­ist um 5%, sam­kvæmt til­kynn­ingu Hag­stofu fyrr í dag. Er það mesti vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi frá 2008. Hag­vöxt­ur­inn er að mestu leyti drif­inn áfram af einka­neyslu, sem jókst um 7%, og útflutn­ingi, sem jókst um 5% á sama tíma­bil­i. 

Í grein­ingu Arion Banka kemur fram að þrátt fyrir mik­inn hag­vöxt hafi fjár­fest­ing og utan­rík­is­verslun verið undir vænt­ing­um. Litla fjár­fest­ingu má að mestu leyti rekja til sam­dráttar í  at­vinnu­vega­fjár­fest­ingu á tíma­bil­inu sem var um 2%. Mik­ill vöxtur í bygg­ingu íbúða dugði ekki til að halda uppi væntri fjár­fest­ingu, en íbúða­fjár­fest­ing jókst um 29% á tíma­bil­inu. Einnig hafi verið búist við meiri utan­rík­is­versl­un, en inn­flutn­ingur og útflutn­ingur var minni en spáð var. 

Auglýsing
Samdrátt atvinnu­vega­fjár­fest­ingar má alfarið rekja til minni fjár­fest­ingar í skipum og flug­vél­um, sem dróst saman um 36% milli ára. Útlit er fyrir því að skipa­fjár­fest­ing muni falla til á þessu ári en minna er um fjár­fest­ingar í flug­vél­um. íbúða­fjár­fest­ing hefur auk­ist um 40% á síð­ustu tveimur árum, en talið er að mik­ill vöxtur hennar muni halda áfram, líkt og  inn­flutn­ing­ur, sem­ent­sala og áætl­anir benda til. 

Líkt og á síð­ustu miss­erum stendur ferða­þjón­ustan undir útflutn­ings­vext­in­um, en þjón­ustu­út­flutn­ingur jókst um 19,2% sem er mesti vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi frá árinu 2007. Vöxt­ur­inn helst í hendur við mikla fjölgun ferða­manna sem komu til lands­ins, en fjöldi þeirra á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár var 452 þús­und, sem er um 54% aukn­ing frá sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi vöru­út­flutn­ingur dreg­ist sam­an, en verk­fall sjó­manna gæti hafa spilað stórt hlut­verk þar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent