Alls búa tæplega 59 prósent Íslendinga á heimilum sem eru með áskrift að Netflix streymiveitunni. Þeim hefur fjölgað um 25,6 prósentustig frá því í janúar 2016. Þá sögðust 33,2 prósent aðspurðra vera með slíka áskrift. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar MMR sem birt var í dag.
Þar segir enn fremur að yngra fólk sé mun líklegra til að vera með áskrift en það sem er eldra. Um 80 prósent námsmanna segja til að mynda að þeir séu með áskrift að Netflix og 77 prósent þeirra sem eru á aldrinum 18-29 ára segja að slík áskrift sé á heimili þeirra. Í aldurshópnum 68 ára og eldri sögðust 26 prósent vera með áskrift.
Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu eru líklegri til að vera með áskrift en þeir sem búa á landsbyggðinni og þeir sem starfa í sérfræðistörfum eru mun líklegri til að vera með áskrift að Netflix en þeir sem vinna við iðngreinar, sjávarútveg eða í landbúnaðarstörfum. Þeir sem eru ekki útivinnandi eru ólíklegastir allra til að vera með áskrift.
Stuðningsmenn Viðreisnar eru langlíklegastir til að vera með Netflix, en 79 prósent þeirra segjast vera með slíka áskrift. Stuðningsmenn Vinstri grænna (52 prósent) og Framsóknar (55 prósent) eru ólíklegastir.
Könnunin var framkvæmd dagana 11. til 16. maí 2017 og var heildarfjöldi svarenda 943 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Staða 365 veikst umtalsvert á undanförnum árum
Kjarninn greindi fra því í síðasta mánuði að í samrunaskrá vegna fyrirhugaðs samruna Fjarskipta og 365 miðla sem skilað var til Samkeppniseftirlitsins 27. apríl síðastliðinn hefðu óvart birst trúnaðarupplýsingar sem fjölluðu meðal annars um stöðuna á sjónvarpsmarkaði hérlendis. Þar kom fram að Netflix væri sú sjónvarpsveita sem væri með flesta áskrifendur á Íslandi á sjónvarpsmarkaði. Alls eru áskrifendur að veitunni 54.120 og markaðshlutdeild hennar er 40 prósent. Stærstu íslensku einkareknu áskriftarstöðvarnar, sjónvarpsstöðvar 365 og Sjónvarp Símans Premium, eru samanlagt með 47 prósent markaðshlutdeild í áskriftarsjónvarpi þegar ekki er tekið tillit til RÚV, sem allir landsmenn eru skyldugir til að vera með áskrift að.
Þar segir að staða 365 miðla, sem á og rekur Stöð 2 og tengdar sjónvarpsstöðvar, hafi veikst á undanförnum árum. Þó nokkur fækkun hafi orðið á viðskiptavinum fyrirtækisins. Í samrunaskránni segir: „Staða 365 hefur þannig veikst, á sama tíma og keppinautar hafa styrkt stöðu sína. Þannig hefur töluverð fækkun orðið á fjölda heimila/kennitalna sem eru í viðskiptum hjá 365 á sl. tveimur árum[...]Þessi fækkun í fjölda viðskiptavina hefur átt sér stað þrátt fyrir að 365 hafi leitast við að svara kalli neytenda um nýjar áskriftarleiðir, og boðið upp á Maraþon Now, sem gerir viðskiptavinum kleift að gerast áskrifendur að heilum þáttaröðum, líkt og Netflix býður upp á.“ Alls eru 35.666 áskrifendur að sjónvarpsþjónustu hjá 365 miðlum samkvæmt uppgefnum upplýsingum og markaðshlutdeild fyrirtækisins á þeim markaði 26 prósent.
Ástæðan er auðvitað sú að áskrift að Netflix kostar rúmlega eitt þúsund krónur á mánuði. Ódýrasti pakkinn hjá 365 sem inniheldur Stöð 2 kostar hins vegar 9.990 krónur og sá dýrasti 22.990 krónur á mánuði.
Samkvæmt samrunaskránni er Sjónvarps Símans Premium með um 28 þúsund áskrifendur, en samkvæmt upplýsingum Kjarnans hefur sú tala hækkað á undanförnum mánuðum og er nú yfir 30 þúsund.
Í skjalinu er einnig greint frá því að Vodafone Play sé með um níu þúsund áskrifendur og sjö prósent markaðshlutdeild og að rúmlega fimm þúsund manns séu með áskrift af bresku sjónvarpsstöðinni Sky hérlendis.