May myndar ríkisstjórn með Norður-Írum

Theresa May fer til fundar við drottninguna í dag til þess að óska eftir umboði til að mynda ríkisstjórn byggða á þingmeirihluta með samsteypu íhaldsflokksins og norður-írskra sambandssinna.

Theresa May er forsætisráðherra Bretlands. Kosningarnar áttu að styrkja stöðu Íhaldsflokksins en hafa veikt stöðu flokksins á þingi.
Theresa May er forsætisráðherra Bretlands. Kosningarnar áttu að styrkja stöðu Íhaldsflokksins en hafa veikt stöðu flokksins á þingi.
Auglýsing

Ther­esa May, leið­togi Íhalds­manna í Bret­landi, hefur náð sam­komu­lagi við norð­ur­-írska sam­bands­flokk­inn um rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Íhalds­flokk­ur­inn náði ekki meiri­hluta á þing­inu í kosn­ing­unum haldnar voru í Bret­landi í gær og þurfa þess vegna að mynda minni­hluta­stjórn eða sam­steypu­stjórn.

Frá þessu er greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guar­di­an.

Ther­esa May er sögð hafa óskað eftir fundi með Elísa­betu drottn­ingu í dag þar sem hún mun óska eftir umboði til þess að mynda nýja rík­is­stjórn íhalds­flokks­ins með stuðn­ingi lýð­ræð­is­lega sam­bands­flokks­ins í Norð­ur­-Ír­landi. May, for­sæt­is­ráð­herra í meiri­hluta­stjórn Íhalds­manna fyrir kosn­ing­arn­ar, mun þess vegna leiða minni­hluta­stjórn eftir kosn­ing­arn­ar.

Auglýsing

Þegar kunn­gjört hefur verið um 649 af 650 sætum í breska þing­inu þá hefur Íhalds­flokk­ur­inn 318 sæti (326 sæti þarf til að mynda hreinan meiri­hluta), Verkama­manna­flokk­ur­inn 261 sæti. Sam­bands­flokkur Norð­ur­-Ír­lands hefur 10 sæti.

­Sam­tal um sam­starfið hóf­st, sam­kvæmt heim­ildum The Guar­di­an, seint í nótt. „Við viljum að það sé rík­is­stjórn. Við höfum unnið vel með May. Hinn kost­ur­inn er óþol­and­i,“ er haft eftir heim­ild­ar­manni innan írska sam­bands­flokks­ins.

Sam­starf Íhalds­manna og sam­bands­sinna í Norð­ur­-Ír­landi mun setja samn­inga­við­ræður um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu í annað ljós. Sam­bands­sinnar hafa gert þá kröfu að Norð­ur­-Ír­land fái ekki „sér­staka stöðu“ innan Bret­lands eftir að hafa sagt skilið við ESB.

Sam­sbands­sinnar hafa áhyggjur af því að ef Norð­ur­-Ír­land fái „sér­staka stöðu“ innan Bret­lands eftir Brexit þá muni það á end­anum kljúfa Norð­ur­-Ír­land enn frekar frá Bret­landi. Sinn Féin, þjóð­ar­flokkur Norð­ur­-Ír­lands, hefur gert það að sínu helsta umfjöll­un­ar­efni að Norð­ur­-Írar fái sér­staka stöðu innan breska sam­bands­ins eftir Brex­it.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent