Sex af hverjum tíu Íslendingum með Netflix

Tæplega átta af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 18-29 ára eru með áskrift að Netflix. Áskrifendum hefur fjölgað um 25,6 prósentustig á rúmu ári

netflix
Auglýsing

Alls búa tæp­lega 59 pró­sent Íslend­inga á heim­ilum sem eru með áskrift að Net­flix streymi­veit­unni. Þeim hefur fjölgað um 25,6 pró­sentu­stig frá því í jan­úar 2016. Þá sögð­ust 33,2 pró­sent aðspurðra vera með slíka áskrift. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar MMR sem birt var í dag. 

Þar segir enn fremur að yngra fólk sé mun lík­legra til að vera með áskrift en það sem er eldra. Um 80 pró­sent náms­manna segja til að mynda að þeir séu með áskrift að Net­flix og 77 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 18-29 ára segja að slík áskrift sé á heim­ili þeirra. Í ald­urs­hópnum 68 ára og eldri sögð­ust 26 pró­sent vera með áskrift. 

Þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru lík­legri til að vera með áskrift en þeir sem búa á lands­byggð­inni og þeir sem starfa í sér­fræði­störfum eru mun lík­legri til að vera með áskrift að Net­flix en þeir sem vinna við iðn­grein­ar, sjáv­ar­út­veg eða í land­bún­að­ar­störf­um. Þeir sem eru ekki úti­vinn­andi eru ólík­leg­astir allra til að vera með áskrift.

Auglýsing

Stuðn­ings­menn Við­reisnar eru lang­lík­leg­astir til að vera með Net­fl­ix, en 79 pró­sent þeirra segj­ast vera með slíka áskrift. Stuðn­ings­menn Vinstri grænna (52 pró­sent) og Fram­sóknar (55 pró­sent) eru ólík­leg­ast­ir. 

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 11. til 16. maí 2017 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 943 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.

Staða 365 veikst umtals­vert á und­an­förnum árum

Kjarn­inn greindi fra því í síð­asta mán­uði að í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­­ast­lið­inn hefðu óvart birst trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem fjöll­uðu meðal ann­ars um stöð­una á sjón­varps­mark­aði hér­lend­is. Þar kom fram að Net­flix væri sú sjón­varps­veita sem væri með  flesta áskrif­endur á Íslandi á sjón­­varps­­mark­aði. Alls eru áskrif­endur að veit­unni 54.120 og mark­aðs­hlut­­deild hennar er 40 pró­­sent. Stærstu íslensku einka­reknu áskrift­­ar­­stöðv­­­arn­­ar, sjón­­varps­­stöðvar 365 og Sjón­­varp Sím­ans Prem­ium, eru sam­an­lagt með 47 pró­­sent mark­aðs­hlut­­deild í áskrift­­ar­­sjón­varpi þegar ekki er tekið til­­lit til RÚV, sem allir lands­­menn eru skyldugir til að vera með áskrift að. 

Þar segir að staða 365 miðla, sem á og rekur Stöð 2 og tengdar sjón­­varps­­stöðv­­­ar, hafi veikst á und­an­­förnum árum. Þó nokkur fækkun hafi orðið á við­­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­runa­­skránni seg­ir: „Staða 365 hefur þannig veikst, á sama tíma og keppi­­nautar hafa styrkt stöðu sína. Þannig hefur tölu­verð fækkun orðið á fjölda heim­ila/­­kennitalna sem eru í við­­skiptum hjá 365 á sl. tveimur árum[...]Þessi fækkun í fjölda við­­skipta­vina hefur átt sér stað þrátt fyrir að 365 hafi leit­­ast við að svara kalli neyt­enda um nýjar áskrift­­ar­­leið­ir, og boðið upp á Mara­þon Now, sem gerir við­­skipta­vinum kleift að ger­­ast áskrif­endur að heilum þátta­röð­um, líkt og Net­flix býður upp á.“ Alls eru 35.666 áskrif­endur að sjón­­varps­­þjón­­ustu hjá 365 miðlum sam­­kvæmt upp­­­gefnum upp­­lýs­ingum og mark­aðs­hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði 26 pró­­sent.

Ástæðan er auð­vitað sú að áskrift að Net­flix kostar rúm­­lega eitt þús­und krónur á mán­uði. Ódýr­­asti pakk­inn hjá 365 sem inn­i­heldur Stöð 2 kostar hins vegar 9.990 krónur og sá dýr­­asti 22.990 krónur á mán­uði.

Sam­­kvæmt sam­runa­­skránni er Sjón­­varps Sím­ans Prem­ium með um 28 þús­und áskrif­end­­ur, en sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum Kjarn­ans hefur sú tala hækkað á und­an­­förnum mán­uðum og er nú yfir 30 þús­und.

Í skjal­inu er einnig greint frá því að Voda­­fone Play sé með um níu þús­und áskrif­endur og sjö pró­­sent mark­aðs­hlut­­deild og að rúm­­lega fimm þús­und manns séu með áskrift af bresku sjón­­varps­­stöð­inni Sky hér­­­lend­­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent