Störf í byggingariðnaði úr 12 í 15 þúsund á næstu árum

Mikil fjölgun starfa er nú í byggingariðnaði og ljóst að mikill fjöldi starfsmanna þarf að koma til landsins erlendis frá til að anna eftirspurn.

Vöxtur í byggingariðnaði hefur verið mikill undanfarið. Flestar spár gera ráð fyrir áframhaldandi hækkun fasteignaverðs.
Vöxtur í byggingariðnaði hefur verið mikill undanfarið. Flestar spár gera ráð fyrir áframhaldandi hækkun fasteignaverðs.
Auglýsing

Mik­ill vöxtur er nú í bygg­ing­ar­iðn­aði enda framundan umfangs­mikil upp­bygg­ing íbúða, hót­ela og atvinnu­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu árum.

Störfum í bygg­ing­ar­iðn­aði hér á landi mun fjölga um nokkur þús­und á næstu árum, gangi spár eft­ir. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofn­un, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að nauð­syn­legt sé að leita til útlanda eftir starfs­fólki í bygg­ing­ar­iðn­aði til að mæta eft­ir­spurn­inni sem framundan er. Einnig bendir hann á að skortur sé á iðn­mennt­uðu fólki af ýmsu tagi og að aug­ljós­lega verði mikla vinnu að hafa fyrir verka­menn á næstu miss­er­um.

Árni Jóhanns­son, sviðs­stjóri mann­virkja­sviðs hjá Sam­tökum iðn­að­ar­ins, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að áætlað sé að tæp­lega tólf þús­und manns starfi í bygg­ing­ar­iðn­aði og að raun­hæft sé að þeim muni fjölga um allt að þrjú þús­und á næstu árum, gangi spár um vöxt í grein­inni eft­ir. 

Auglýsing

Framundan er mik­ill upp­bygg­ing­ar­tími á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem mik­ill skortur er á íbúð­ar­hús­næði. Búist er við því að um níu þús­und íbúðir verði byggðar á næstu þremur árum til að mæta eft­ir­spurn, og stuðla að jafn­vægi á fast­eigna­mark­aði.

Á sama tíma er mikil eft­ir­spurn eftir hús­næði og hefur fast­eigna­verða rokið upp á síð­ustu árum. Hvergi í heim­inum hefur það hækkað hraðar en á Íslandi, en hækk­unin á síð­ustu tólf mán­uðum hefur verið rúm­lega tutt­ugu pró­sent að með­al­tali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.



Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun fast­eigna­verðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent