Dalurinn ehf. kaupir Birting

Hreinn Loftsson fagnar viðskiptunum, og segir þau ánægjuleg fyrir alla sem að þeim koma.

 Um tíma stóð til að Pressan, sem rekur m.a. DV, myndi kaupa Birting, en frá því var fallið sökum fjárhagsvandræða Pressunnar.
Um tíma stóð til að Pressan, sem rekur m.a. DV, myndi kaupa Birting, en frá því var fallið sökum fjárhagsvandræða Pressunnar.
Auglýsing

Í kjöl­far rift­unar á kaupum Pressunnar ehf. á hlutafé í Birtíngi útgáfu­fé­lagi ehf. hinn 10. maí sl. hefur Eign­ar­halds­fé­lagið Dal­ur­inn ehf. keypt allt hlutafé Birtíngs útgáfu­fé­lags ehf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu. Pressan hugð­ist kaupa Birt­ing en við­skipt­unum var rift sökum afleitrar fjár­hags­stöðu Pressunn­ar, eins og greint var frá á vef Kjarn­ans 17. maí síð­ast­lið­inn.

Birtíngur gefur út Gest­gjafann, Hús og híbýli, Vik­una og Nýtt líf.  Eig­endur Dals­ins eru Árni Harð­­­­­ar­­­­­son, Hall­­­­­dór Krist­­­manns­­­son­­, Hilm­­­­­­­­ar Þór Krist­ins­­­­­son, Jóhann G. Jóhanns­­­­­son­­­­ og Róbert Wessm­an. 

Auglýsing

Hver hlut­hafi á 20% hlut í félag­inu. Selj­endur Birtíngs eru SMD ehf. (í eigu Hreins Lofts­son­ar), Prospectus ehf. (í eigu Matth­í­asar Björns­son­ar) og Karl Steinar Ósk­ars­son. Hreinn hefur verið stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Birtíngs síð­ast­liðin átta ár, Matth­ías fjár­mála­stjóri frá sama tíma og Karl Steinar fram­kvæmda­stjóri í fimm ár. Þeir Karl Steinar og Matth­ías halda áfram störfum sínum hjá félag­inu. Kaup­verðið er trún­að­ar­mál, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Hreinn Lofts­son segir að þetta séu veru­lega góð tíð­indi ekki aðeins fyrir fyrri hlut­hafa heldur einnig fyrir starfs­fólk, við­skipta­vini og lán­ar­drottna fyr­ir­tæk­is­ins. „Nýir eig­endur hafa lagt félag­inu til tals­verða fjár­muni til nið­ur­greiðslu skulda og þar með lýkur þeirri fjár­hags­legu end­ur­skipu­lagn­ingu sem staðið hefur yfir und­an­farin miss­eri. Ég vil nota tæki­færið og óska nýjum eig­endum og starfs­fólki vel­farn­aðar og þakka um leið starfs­fólk­inu, við­skipta­vinum og sam­starfs­að­ilum fyrir gott sam­starf á liðnum árum.“

Gunn­laugur Árna­son mun taka sæti stjórn­ar­for­manns í Birtíngi og leiða stefnu­mótun fyr­ir­tæk­is­ins fyrir hönd hlut­hafa. Hann hefur víð­tæka reynslu af fjöl­miðl­un, bæði hér á landi og erlend­is. Gunn­laugur er eig­andi bresku fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna M2 Comm­un­ications og M2 Bes­poke. Hann vann um fimm ára skeið sem blaða­maður hjá Reuter­s-frétta­stof­unni í Lund­únum og var rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins á árunum 2005-2007. „Innan Birtíngs eru rót­gróin vöru­merki og nú þegar fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu er lokið getur félagið nýtt þann góða grunn til frek­ari vaxtar á fjöl­miðla­mark­að­i,“ segir Gunn­laug­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent