Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka og tekur við starfinu 1. júlí. Hú hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá febrúar 2016 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Iða Brá tekur við starfinu af Helga Bjarnasyni sem nýverið sagði upp störfum hjá bankanum til að gerast forstjóri VÍS. Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, mun sinna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs samhliða öðrum störfum fyrst um sinn.
Í tilkynningu kemur fram að Iða Brá sé viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf.
Kjarninn greindi frá því í lok apríl að Iða Brá hefði verið kjörin í stjórn Stoða, sem áður hét FL Group, á síðasta aðalfundi félagsins.