Kynjakvótar leiða til hæfari stjórnmálamanna

Innleiðing kynjakvóta hjá framboðslistum stjórnmálaflokka hefur jákvæð áhrif á hæfni frambjóðenda, samkvæmt nýrri grein fjögurra stjórnmála- og hagfræðinga.

Konur sem komast inn á kynjakvóta eru hæfari en þeir karlar sem detta út vegna hans, samkvæmt greininni.
Konur sem komast inn á kynjakvóta eru hæfari en þeir karlar sem detta út vegna hans, samkvæmt greininni.
Auglýsing

Kynja­kvótar hafa jákvæð áhrif á fram­boðs­lista stjórn­mála­flokka þar sem þeir fjölga hæfum kven­kyns stjórn­mála­mönnum á kostnað minna hæfra karl­kyns stjórn­mála­manna. Þetta eru nið­ur­stöður fræði­greinar sem birt verður í næsta tölu­blaði Amer­ican Economic Review. Fyrra upp­kast grein­ar­innar má lesa hér.

Rennilása­kvót­inn

Kynja­kvóta­kerfi í ein­hvers konar mynd meðal stjórn­mála­flokka er til staðar í meira en hund­rað lönd­um. Gagn­semi slíks kerfis hefur verið umdeild, en margir and­stæð­ingar kynja­kvóta segja þá koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn kom­ist áfram á eigin verð­leik­um.

Höf­undar umræddrar greinar komust hins vegar að annarri nið­ur­stöðu þegar þeir könn­uðu alla fram­bjóð­end­ur sveita­stjórna­kosn­inga í Sví­þjóð á tíma­bil­in­u 1982-2014. Árið 1993 var svo­kall­aður „rennilása­kvóti“ (zipper quota) inn­leiddur af Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­inum, en skoðuð voru áhrif kvót­ans á hæfni fram­bjóð­end­anna sem stjórn­mála­menn. Rann­sóknin leiddi í ljós að hæfni fram­bjóð­enda jókst með inn­leið­ingu kynja­kvóta, sér­stak­lega í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem aukn­ing á kven­kyns fram­bjóð­endum var mest.

Auglýsing

Elíta miðl­ungs hæfra karl­manna

Út­skýr­ing á nið­ur­stöð­unum var á þá leið að kvót­arnir nái að leið­rétta kerf­is­bund­inn galla sem felist í full­trúa­lýð­ræði. Sam­kvæmt höf­undum grein­ar­innar er hætta á að for­maður stjórn­mála­flokks stilli ekki hæf­ustu stjórn­mála­menn­ina upp á listum sínum af ótta við að stöðu hans verði ógn­að. Þannig geti víta­hringur orðið til þar sem miðl­ungs stjórn­mála­menn velji sér aðra miðl­ungs stjórn­mála­menn til þess að tryggja sína stöðu innan flokks­ins. 

Með kynja­kvótum næst hins vegar að brjóta upp þennan víta­hring þar sem miðl­ungs stjórn­mála­mönnum verði rutt út fyrir hæf­ari kven­kyns stjórn­mála­menn. Að mati grein­ar­höf­unda gætu kvót­arnir með öðrum orðum raskað þeim öflum sem við­halda elítu miðl­ungs hæfra karl­manna í valda­stöð­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent