Kjartan Þór Eiríksson, sem nýverið sagði starfi sínu sem framkvæmdastjóri Kadeco lausu, hefur skilað stjórn félagsins skriflegum svörum vegna viðskipta sinna á Ásbrú og tengslum sínum við kaupendur eigna sem Kadeco hefur selt á síðustu árum á svæðinu. Stjórn Kadeco hefur hvorki sent fjármála- og efnahagsráðuneytinu svörin né hefur ráðuneytið óskað eftir að fá þau send. Þar sem Kjartan Þór hefur þegar sagt starfi sínu lausu mun ekki reyna á afstöðu stjórnar Kadeco til svara hans við spurningum stjórnarinnar. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem fer með eignarhald ríkisins í Kadeco, við fyrirspurn Kjarnans um málið.
Þar segir enn fremur að ráðuneytið fari fyrst og fremst með stefnumarkandi ákvarðanir um rekstur Kadeco en skipti sér ekki af rekstrinum frá degi til dags.
Í viðskiptasambandi við viðskiptavin Kadeco
Kadeco, sem er þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sendi frá sér tilkynningu 1. ágúst síðastliðinn þar sem fram kom að Kjartan Þór, sem hafði gegnt starfi framkvæmdastjóra frá stofnun félagsins árið 2006, hefði sagt starfi sínu lausu. Hann lét samstundis að störfum.
Kjartani Þór var gert að gera munnlegar skýringar á viðskiptum sínum á Ásbrú og tengslum sínum við kaupendur eigna sem Kadeco hefur selt á síðustu árum á svæðinu á stjórnarfundi sem fram fór í lok júní. Stjórn félagsins ákvað í kjölfarið að óska eftir því að Kjartan Þór geri stjórninni skriflega grein fyrir viðskiptum sínum á svæðinu. Kjarninn hefur óskað eftir upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um hvort það hafi verið gert en ekki fengið svör við þeirri fyrirspurn.
Málið snýst um tengsl Kjartans Þórs við Sverri Sverrisson. Félög tengd Sverri keyptu þrjár fasteignir af Kadeco á undanförnum árum á samtals 150 milljónir króna. Síðasta eignin sem félög tengd honum keyptu var seld í febrúar á þessu ári, nokkrum mánuðum eftir að Kjartan Þór og Sverrir hófu viðskiptasamband. Þeir eiga saman félagið Airport City á Ásbrú sem stundar fasteignaviðskipti, þó ekki við Kadeco.
Lagt niður í núverandi mynd
Kjarninn greindi frá því í lok júní að til standi að leggja starfsemi Kadeco niður í núverandi mynd. Skipt var um stjórn í félaginu fyrir um mánuði síðan og upprunalegu hlutverki þess, að selja fasteignir á Ásbrú, er nú lokið. vilji taka upp viðræður við heimamenn um hvernig sé hægt endurskoða starfsemina með það í huga.
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði við Kjarnann að hann hafi lýst þessari skoðun sinni á fundum með starfsfólki Kadeco í lok júnímánaðar. Nokkrum dögum áður var haldinn aðalfundur Kadeco og þar var kosin ný þriggja manna stjórn. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, hafði verið formaður stjórnarinnar en vék ásamt tveimur öðrum stjórnarmönnum. Í stað Sigurðar Kára var Georg Brynjarsson, hagfræðingur og stjórnarmaður í Viðreisn, kjörinn stjórnarformaður. Auk hans komu tveir starfsmenn fjármála- og efnahagsráðuneytisins inn í stjórn Kadeco. Benedikt staðfesti við Kjarnann að þessar breytingar væru liður í því að leggja starfsemi Kadeco niður í núverandi mynd.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans kemur fram að nýskipuð stjórn Kadeco hafi verið falið að fara yfir verkefnastöðu félagsins og gera tillögur um hvernig þeim verkefnum sem það hefur verði best fyrir komið í framtíðinni.