Finna engar aðrar skýringar en mannlegar athafnir

Hópur vísindamanna á launaskrá bandaríska ríkisins hefur rýnt í loftslagsgögnin og sent Donald Trump.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur loftslagsbreytingar ekki vera af mannavöldum, þvert á vísindalegar niðurstöður.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur loftslagsbreytingar ekki vera af mannavöldum, þvert á vísindalegar niðurstöður.
Auglýsing

For­seta­emb­ættið í Banda­ríkj­unum hefur sér­staka lofts­lagsút­tekt til skoð­unar um þessar mund­ir. Banda­rískir fjöl­miðl­ar, sem hafa lofts­lagsút­tekt­ina undir hönd­um, segja for­seta­emb­ættið hafa leynt til­veru skýrsl­unn­ar.

Í úttekt­inni lýsa vís­inda­menn sem starfa við 13 alrík­is­stofn­anir í Banda­ríkj­unum hinum víð­tæka skaða sem hlýnun jarðar hefur þegar haft í för með sér í Banda­ríkj­un­um.

Don­ald Trump og rík­is­stjórn hans hefur sagst ætla að hætta stuðn­ingi sínum við Par­ís­ar­sam­komu­lag­ið. Í takt við það hefur for­set­inn skipað ann­ál­aðan efa­semda­mann um lofts­lags­breyt­ingar yfir Umhverf­is­stofnun Banda­ríkj­anna. Síðan Trump tók við emb­ætti for­seta í jan­úar hefur hann einnig snúið til­skip­unum Baracks Obama, for­vera síns í emb­ætti, sem lúta að bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ing­ar.

Auglýsing

Úttektin sem vís­inda­menn­irnir hafa sent til Was­hinton kall­ast Climate Sci­ence Special Report. Þar segir að það sé „mjög lík­legt“ að meira en helm­ingur hlýn­un­ar­innar síð­ustu fjóra ára­tugi eða svo sé vegna athafna manna. Það gengur þvert á stað­hæf­ingar Trump-­stjórn­ar­innar um að ábyrgð manna í lofts­lags­breyt­ingum sé óþekkt stærð.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Was­hington Post sem hefur úttekt­ina undir hönd­um. Um drög að úttekt­inni er að ræða en hún hefur þegar hlotið ítar­lega skoð­un. Þar kemur fram það mat að mann­legar athafnir hafi leitt til hlýn­unar um 1,98 til 2,34 gráður frá 1951 til 2010.

„Margar vís­bend­ingar eru um að mann­legar athafn­ir, þá sér­stak­lega útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, séu aðal­á­stæðan fyrir lofts­lags­breyt­ingum und­an­far­ið,“ segir í úttekt­inni. „Það eru engar aðrar skýr­ing­ar, og engir nátt­úru­legar hringrásir sem hægt er að finna í gögn­unum sem geta útskýrt lofts­lags­breyt­ing­arnar sem þegar hafa orð­ið.“

Enn er óvíst hvernig yfir­völd í Hvíta hús­inu munu bregð­ast við úttekt­inni. Margir vís­inda­menn eru sagðir líta á þetta sem til­rauna­verk­efni um afstöðu stjórn­valda til vís­inda eins og þau leggja sig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent