Lægsta atvinnuleysi í 42 ár í Bretlandi

Atvinnuleysi hefur ekki mælst lægra í Bretlandi í langan tíma, en þó eru sérfræðingar áhyggjufullir yfir þróun vinnumarkaðarins.

Störfum gæti fækkað mjög í Lundúnum.
Störfum gæti fækkað mjög í Lundúnum.
Auglýsing

Atvinnu­leysi mæld­ist 4,4% á öðrum árs­fjórð­ungi í Bret­landi, en það hefur ekki verið lægra í 42 ár. Þó er staðan á vinnu­mark­aði ekki sem best þar í landi, sam­kvæmt nýrri frétt CNN.

Hag­stofa Bret­lands birti í dag vinnu­mark­aðs­tölur sínar af öðrum árs­fjórð­ungi 2017. Sam­kvæmt þeim hefur atvinnu­þátt­taka 16 til 64 ára Breta auk­ist upp í 75,1%, en það er hæsta atvinnu­þátt­töku­hlut­fall þar í landi í 45 ár. 

Sömu­leiðis hefur atvinnu­leysi minnkað og hefur ekki mælst lægra síðan árið 1975. Hlut­fallið mæld­ist í 4,4% á vor­mán­uðum í ár, miðað við 4,9% fyrir sama tíma­bil í fyrra. Töl­urnar voru ekki full­kom­lega í takt við vænt­ing­ar, en búist var við því að það yrði 0,1 pró­sentu­stigi hærra. 

Auglýsing

Sam­kvæmt frétt CNN á vinnu­mark­að­ur­inn í Bret­landi þó erfitt upp­drátt­ar, lítið atvinnu­leysi skilar sér ekki í raun­vexti launa. Nafn­virði launa hækk­uðu um 2,1% fyrir sama tíma­bil og verð­bólgan var 2,6%, þannig að raun­virði launa lækk­aði um 0,5% frá apríl til jún­í. 

­Sam­hliða lækkun raun­launa minnk­aði einnig fram­leiðni í Bret­landi, annan árs­fjórð­ung­inn í röð og er nú orðin minni en í Frakk­landi, Þýska­landi og öðrum þró­uðum hag­kerf­um. Þetta sé áhyggju­efni að mati eins álits­gjafa CNN þar sem fram­leiðni­aukn­ing sé eina sjálf­bæra leiðin í átt að hærri launum og meiri lífs­gæð­um.

Fyr­ir­huguð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu gæti líka haft slæmar afleið­ingar fyrir vinnu­mark­að­inn, en búast má við því að draga muni úr vinnu­afli þar sem erf­ið­ara verður fyrir erlenda verka­menn að vinna í land­inu. Kjarn­inn hefur áður fjallað um fyr­ir­hug­aða flutn­inga erlendra fjár­mála­fyr­ir­tækja úr Lund­ún­um, en lík­legt er að með þeim fari um 10-20 þús­und störf annað hvort til Dyfl­innar eða Frank­furt



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent