Vogunarsjóðirnir hættir við að nýta kauprétt í Arion

Þrír vogunarsjóðir og Goldman Sachs, sem eiga þegar 29,18 prósent í Arion banka, ætla ekki að nýta sér kauprétt og verða saman meirihlutaeigendur. Fjöldi annarra vogunarsjóða hafa áhuga á því að fjárfesta í bankanum. Búist er við úboði í haust.

Arion Banki
Auglýsing

Þrír vog­un­ar­sjóðir og banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn Gold­man Sachs International, sem keyptu 29,18 pró­­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði snemma á þessu ári, ætla ekki að nýta sér kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut sem þeir höfðu samið um, og þurftu að nýta fyrir 19. sept­em­ber næst­kom­andi. Frá þessu er greint í Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Þar segir að hvorki Gold­man Sachs né vog­un­ar­sjóð­irnir þrír, Taconic Capi­tal, Och-Ziff Capi­tal Mana­gement, Attestor Capi­tal, ætli sér að nýta kaup­rétt­inn.

Til stendur að fram fari hluta­fjár­út­boð í októ­ber eða nóv­em­ber þar sem 58 pró­sent hlutur í Arion banka verður seld­ur. Í Mark­aðnum segir að hann hafi heim­ildir fyrir því að veru­legur áhugi sé hjá erlendum sjóðum að taka þátt í því útboði. Fossar mark­að­ir, sem verði sölu­ráð­gjafar Kaup­þings í útboð­inu, hafi þegar safnað fjár­festa­lof­orðum fyrir um 90 til 100 millj­arða króna. Í Mark­aðnum segir að um sé að ræða „sömu sjóði og hafa verið umsvifa­miklir í fjár­fest­ingum í skráðum félögum síð­ustu miss­eri – Eaton Vance, Well­ington og Miton – og eins aðra erlenda sjóði sem hafa ekki áður fjár­fest á Íslandi og eru meðal ann­ars hlut­hafar í ýmsum evr­ópskum fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m.“

Auglýsing
Þátttaka íslenskra líf­eyr­is­sjóða er því ekki talin lyk­il­at­riði í því lengur að hægt verði að selja  um­tals­verðan hlut í Kaup­þingi í gegnum hluta­bréfa­út­boð. Þegar Fjár­mála­eft­ir­litið hefur lokið því að meta hæfi þeirra tveggja sjóða sem keyptu 9,99 pró­sent hlut í Kaup­þingi í mars, Taconic Capi­tal og Attestor Capi­tal, til að fara með virkan eign­ar­hlut, og þegar íslenska ríkið hefur stað­fest að það muni ekki nýta for­kaups­rétt sinn á bréfum í bank­an­um, verður hægt að ráð­ast í útboð. Búist er við því að þetta klárist allt á næstu vik­um.

Fjórir keyptu hluti í Arion banka af sjálfum sér

Í mars var til­­kynnt að fjórir aðil­­ar, vog­un­­ar­­sjóð­irnir Taconic Capi­tal, Och-Ziff Capi­tal Mana­gement, Attestor Capi­tal og fjár­­­fest­inga­­bank­inn Gold­man Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­­þingi á 48,8 millj­­­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöð­u­­­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­­­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­­­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­­­ast myndi rík­­­­­is­­­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Í við­­­skipt­unum fólst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­­­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mög­u­­­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­­­inu kleift að ganga inn í kaup­in.

Til við­­­bótar átti þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­­­sent hlut í Arion banka. Hefðu þeir nýtt hann yrðu vog­un­­­ar­­­sjóð­irnir þrír og Gold­man Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka. Nú er hins vegar full­yrt að þeir ætli sér ekki að nýta rétt­inn.

Til að telj­­ast virkur eig­andi í fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki þarf að eiga yfir tíu pró­­sent hlut. Tveir kaup­end­anna, Taconic og Attestor, halda sem stendur á 9,99 pró­­­sent hlut. Þeir hafa þó báðir óskað eftir því við Fjár­­­mála­eft­ir­litið að farið sé með þá sem virka aðila. Búist er við því að eft­ir­litið skili nið­ur­stöðu sinni á allra næstu vik­um.

Þessir fjórir aðilar keyptu hlut­inn í Arion banka af Kaup­­­þingi ehf. eiga líka sam­tals 66,31 pró­­­sent hlut í Kaup­­­þingi. Langstærsti ein­staki eig­andi Kaup­­­þings eru sjóðir í stýr­ingu Taconic Capi­tal með 38,64 pró­­­sent eign­­­ar­hlut.  Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­borgískt félag tengd Och-Ziff Capi­tal Mana­gement Group með 14,21 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Þriðji stærsti hóp­­­ur­inn eru sjóðir í stýr­ingu hjá Attestor Capi­tal, sem eiga 8,63 pró­­­sent hlut. Fjár­­­­­fest­inga­­­bank­inn Gold­man Sachs og sjóður í stýr­ingu hans eru síðan skráðir fyrir 4,83 pró­­­sent hlut. Því er ljóst að sjóð­irnir voru að selja sjálfum sér hluti í Arion banka. Og beinn og óbeinn hlutur þeirra í bank­­anum er sam­an­lagt mun hærri en sá hlutur sem keyptur var.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent