Segir „öldu samruna“ líða yfir ferðaþjónustuna

Eggert B. Ólafsson lögfræðingur segir mikið um samruna ferðaþjónustufyrirtækja þessi misserin.

Auglýsing
Eggert B. Ólafsson, lögfræðingur hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur.
Eggert B. Ólafsson, lögfræðingur hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur.

Mikil sam­þjöppun er í ferða­þjón­ustu um þessar mund­ir, sam­kvæmt Egg­erti Ólafs­syni, lög­fræð­ingi sem sér­hæfir sig í sam­keppn­is­mál­um. Sam­kvæmt honum er ekki búist við því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið gagn­rýni sam­runa Iceland Tra­vel og Gray Line, jafn­vel þótt sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild félag­anna gæti verið mik­il.

Egg­ert birti grein um málið á vef Sam­keppn­is­ráð­gjafar, en í henni er greint frá fjölda sam­runa félaga innan ferða­þjón­ust­unn­ar. Sú fyrsta hafi senni­lega verið fyrir um einu ári síðan þegar fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Eldey keypti í Norð­ur­sigl­ingu á Húsa­vík. Seinna um árið hafi sjóð­ur­inn Horn III svo keypti Hag­vagna og Hóp­bíla, en Kjarn­inn fjall­aði um kaupin fyrir stuttu.  

Í sumar hafi svo borið meira á sam­ein­ingum fyr­ir­tækja sem sér­hæfa sig í sölu á upp­lif­un­ar­ferðum og skoð­un­ar­ferða, líkt og með sam­runa Extreme Iceland og Arctic Adventures í maí síð­ast­liðn­um. Í síð­ustu viku var til­kynnt um yfir­töku Iceland Tra­vel á Gray Line og nú í þess­ari viku var sagt frá því að Eldey og Íslenskir fjalla­leið­sögu­menn væru að kaupa meiri­hluta í Arc­anum ferða­þjón­ustu.

Auglýsing

Vikið er að því í grein­inni hversu fjöl­breyttir sam­run­arnir eru að gerð. Í fyrsta lagi séu það sam­steypu­sam­runar milli atvinnu­greina (Eldey og Norð­ur­sigl­ing), í öðru lagi lóð­réttir sam­runar innan ferða­þjón­ust­unnar (Iceland Tra­vel og Gray Line) og í þriðja lagið láréttir sam­runar (Extreme Iceland og Arctic Adventures).

Það sé sam­eig­in­legt sam­steypu­sam­r­unum og lóð­réttum sam­r­unum að almennt hafi þeir síður í för með sér sam­keppn­is­leg vand­kvæði heldur en lárétt­ir. Þó geti hinir fyrr­nefndu skapað hættu á upp­lýs­inga­leka, eða úti­lokun keppi­nauta frá mark­aði ef mark­aðs­hlut­deild beggja sam­runa­að­ila sé há.

Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hver mark­aðs­hlut­deild Iceland Tra­vel og Gray Line sé á við­kom­andi mörk­uð­um. Þó telur Egg­ert ekki senni­legt að Sam­keppn­is­eft­ir­litið geri veiga­miklar athuga­semdir við sam­runa fyr­ir­tækj­anna, jafn­vel þótt mark­aðs­hlut­deild þeirra kunni að vera stór.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent