Hjörleifur: RÚV lét misnota sig í sjómannamyndarmálinu

Hjörleifur Guttormsson segir að lög hafi verið brotin þegar mynd af sjómanni var máluð á gafl Sjávarútvegshússins. RÚV hafi látið misnota sig í málinu og borgarstarfsmenn séu að beina athygli frá eigin gjörðum með því að benda á „sökudólg út í bæ“.

DSC9021-1024x681.jpg
Auglýsing

Hjör­leifur Gutt­orms­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður og ráð­herra Alþýðu­banda­lags­ins, segir að sjó­manna­mynd­ar­málið sýni mikla bresti hjá stjórn­endum Reykja­víkur og í stjórn­kerfi höf­uð­borg­ar­inn­ar. Almenn­ingi og þeim sem næstir eru vett­vangi blasi við, lög og sam­þykktir hafi verið brotið í þágu skemmt­ana­halds einka­að­ila og farið í felu­leik um máls­at­vik til að kom­ast hjá því að horfast í augu við eigin gjörn­ing. Hann segir frétta­stofu RÚV hafa látið mis­nota sig með því að taka við tölvu­póstum sem hann skrif­aði borg­ar­starfs­mönn­um, setja saman hræri­graut út þeim feng og birta á frétta­vef sín­um. Þessi send­ing hafi verið frá fólki í borg­ar­kerf­inu sem hafi greini­lega verið mikið í mun að „beina athygli frá eigin sam­þykktum og gjörðum og benda þess í stað á söku­dólg úti í bæ.“ Þetta kemur fram í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

­Málað var yfir mynd af sjó­manni á gafli Sjáv­ar­út­vegs­húss­ins í júlí síð­ast­liðn­um. Myndin var máluð á gafl­inn í tengslum við Iceland Airwa­ves hát­ið­ina 2015 og var hluti af alls tólf verkum sem máluð voru á hús af því til­efni. Engin virð­ist geta sagt hver hafi tekið ákvörðun um að málað yrði yfir verkið en RÚV birti í síð­ustu viku tölvu­póst­sam­skipti Hjör­leifs, sem býr í Skugga­hverf­inu í námunda við Sjáv­ar­út­vegs­hús­ið, við borg­ar­yf­ir­völd. Í tölvu­póst­unum kom fram að Hjör­leifur hefði óskað eftir því að verkið yrði fjar­lægt og bygg­inga­full­trúi Reykja­vík­ur­borgar sagði að það væri „mikið fyrir brjóstið á fyrr­ver­andi ráð­herra sem býr í nágrenn­in­u.“

Hjör­leifur segir í grein sinni í dag að myndin hafi sett sterkan svip á umhverfið við hlið Hörpu. Þegar borg­ar­stjórn hefði sam­þykkt ósk Iceland Airwa­ves um að mála mynd­ina á gafl­inn hefði hún ekki sett neinn skil­yrði um hversu lengi verkið mætti standa né gert fyr­ir­vara um grennd­ar­kynn­ingu.

Hjörleifur Guttormsson.Hann segir síðan að málið kunni að virð­ast létt­vægt og heldur ómerki­legt, en þegar betur sé að gáð sýni það mikla bresti hjá stjórn­endum og stjórn­kerfi Reykja­vík­ur­borg­ar. „Lít­ils­virð­ingin gagn­vart almenn­ingi og þeim sem næstir eru vett­vangi blasir hér við. Brotin eru lög og sam­þykktir í þágu skemmt­ana­halds einka­að­ila, Farið er í felu­leik um máls­at­vik til að kom­ast hjá því að horfast í augu við eigin gjörn­ing. Ekki ég, ekki ég...eru svörin sem fjöl­miðlar fá við eft­ir­grennslan og í þokka­bót er sáldrað út tölvu­póstum af sam­skiptum íbúa við stjórn­kerfi borg­ar­inn­ar. Hver er staða stjórn­enda Reykja­víkur gagn­vart þeim sem ástunda veggjakrot á eignir borg­ar­búa og stað­hæfa margir hverjir að þar sé um lista­verk að ræða? Reykja­vík er að verða útb­íuð af þess háttar skrauti, Umhverfi Reykja­víkur verð­skuldar önnur vinnu­brögð en þau sem end­ur­spegl­ast í þessu máli. - Höf­uð­stað­ur­inn þarf á jákvæðri sam­vinnu við íbú­ana að halda og trún­aði í sam­skipt­u­m.“

Auglýsing
Hjörleifur gagn­rýnir fjöl­miðlaum­fjöllun um málið og segir að það snú­ist um mun meira en einn hús­gafl. Málið varði sam­skipti borg­ar­stjórnar við umbjóð­endur sína og vand­aða máls­með­ferð, ekki síst í skipu­lags­mál­um. „Hlutur frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins er í þessu sam­hengi afar sér­stak­ur. Þar á bæ veita menn mót­töku tölvu­póstum úr borg­ar­kerf­inu frá fólki sem er greini­lega mikið í mun að beina athygli frá eigin sam­þykktum og gjörðum og benda þess í stað á söku­dólg úti í bæ. Settur er saman hræri­grautur úr þessum feng og birtur á frétta­vef RÚV. Mann tekur sárt að sjá „út­varp allra lands­manna“ láta mis­nota sig með þessum hætti. Alvar­legri eru þó þeir brestir sem end­ur­spegl­ast nú um stundir í stjórn­kerfi Reykja­víkur á mörgum sviðum og veggjakrot í kjöl­far handa­upp­rétt­inga í borg­ar­stjórn­inni er aðeins örlítið dæmi um.“

Hjör­leifur var Alþing­is­maður fyr­ir­ Al­þýðu­banda­lagið frá­ 1978 til 1999. Hann var iðn­að­ar­ráð­herra frá 1978 til 1979 og svo aftur 1980 til 1983. Hjör­leifur var einn stofn­enda Vinstri grænna en sagði sig úr flokknum í jan­úar 2013. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent