Um 1.200 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimili

Um 200 starfsmenn vantar í hlutastörf á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar.Rúmur þriðjungur þeirra barna sem sótt hafa um vistun hafa ekki fengið hana. Heildartala barna á höfuðborgarsvæðinu öllu er líklega mun hærri.

born_19154270071_o.jpg börn leiksskóli
Auglýsing

Um 1.200 börn eru nú á biðlista eftir plássi á frí­stunda­heim­ilum í Reykja­vík. Enn vantar að ráða um 200 manns í hluta­störf á þeim svo hægt sé að taka við þeim fjölda sem enn hefur ekki fengið sam­þykkta umsókn. Þetta kemur fram í frétt á vef BSRB þar sem vitnað er í upp­lýs­ingar frá skóla- og frí­stund­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar.

Þar segir að ein­ungis hafi verið hægt að sam­þykkja um 2.000 af 3.200 umsóknum um pláss á frí­stunda­heim­il­u­m ­borg­ar­inn­ar. Það þýðir að rúmur þriðj­ung­ur, 37,5 pró­sent, þeirra barna sem sótt hefur verið um pláss fyrir hafa enn ekki fengið slíkt. Búast megi við að staðan sé svipuð í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og því séu lík­indi til þess að heild­ar­tala ­barna á biðlista á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé tals­vert hærri.

BSRB segir að erf­ið­leikar við að manna frí­stunda­heim­il­in ­séu enn ein birt­ing­ar­mynd þess að lægstu laun þurfi að hækka enn meira. Biðlist­arnir leiði af sér vinnu­tap og álag fyr­ir for­eldra. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skóla- og frí­stunda­sviði borg­ar­innar er nú verið að skoða hvernig hægt sé að bæta starfs­um­hverfið til að gera störfin meira aðlað­andi. Þá hafi verið aug­lýst víða eftir starfs­mönnum á frí­stunda­heim­il­um, en þeir eru flestir háskóla­nemar eða nemar úr elstu árgöngum mennta­skóla sem vinna þar ­með fram ­skóla.

Auglýsing

BSRB telur aug­ljóst að laun starfs­manna á frí­stunda­heim­il­um, eins og ann­arra umönn­un­ar­stétta, þurfi að vera hærri. „Auk þess má eflaust bæta starfs­um­hverf­ið, eins og borgin virð­ist þegar byrjuð að gera. Í kjara­samn­ingum und­an­farin ár hefur rétti­lega verið lögð mikil áhersla á hækkun lægstu launa. Erf­ið­leikar við að manna störf á frí­stunda­heim­il­um, sem og önnur störf við umönn­un, benda til þess að þar þurfi að ganga enn lengra.

Áhrifin af þessum árvissu erf­ið­leikum á barna­fjöl­skyldur geta verið mik­il. Þegar yngstu börnin kom­ast ekki inn á frí­stunda­heim­ili þurfa for­eldrar að bjarga sér. Ein­hverjir búa svo vel að eiga ætt­ingja eða vini sem geta hjálp­að. Aðrir eru með vinnu­veit­endur sem eru til­búnir að veita sveigj­an­leika til að koma til móts við starfs­menn sína. Ein­hverjir verða fyrir vinnu­tapi, með til­heyr­andi tekju­skerð­ingu.

Hvernig sem for­eldrar fara að því að takast á við það þegar börn kom­ast ekki inn á frí­stunda­heim­ili að loknum skóla er ljóst að þetta ástand er mik­ill streitu­valdur fyrir fólk í þess­ari stöðu. Með því að vinna mark­visst að fjöl­skyldu­vænna sam­fé­lagi má draga úr þeim áhrif­um, til dæmis með sveigj­an­legum vinnu­tíma svo hægt sé að takast á við óvæntar aðstæður á borð við þess­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent