Áformað að stöðva rekstur United Silicon 10. september

Verksmiðjan verður ekki ræst aftur fyrr en að úrbætur hafa verið gerðar. Arion banki afskrifaði hlutafé upp á einn milljarð í United Silicon í nýbirtum árshlutareikningi. Fyrirtækið skuldar Arion banka enn átta milljarða.

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

Áform eru uppi um að stöðva rektur kís­il­málm­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík 10. sept­em­ber næst­kom­andi til að gera umbætur á bún­aði henn­ar. Þetta kemur fram í bréfi sem Umhverf­is­stofnun sendi fyr­ir­tæk­inu í gær og greint er frá í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Sig­rúnu Ágústs­dótt­ur, svið­stjóra hjá Umhverf­is­stofn­un, að ekki verði gefin heim­ild til að ræsa verk­smiðj­una að nýju ef úrbætur verða ekki gerð­ar.

Blaðið ræðir einnig við Björt Ólafs­dótt­ur, umhverf­is- og auð­lind­ar­ráð­herra. Hún segir að rekstur United Sil­icon hafi verið ein sorg­ar­saga alveg frá byrjun og að henni þyki und­ar­legt að þeir sem fari með fé almenn­ings fjár­festi í fyr­ir­tæki sem almenn­ingur í nágrenn­inu sé á móti. Þar vísar Björt í að nágrannar kís­il­málm­verk­smiðj­unnar hafa ítrekað kvartað yfir lykta­mengun frá henni og þess að þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa fjár­fest fyrir sam­tals 2,2 millj­arða króna í United Sil­icon, annað hvort í formi hluta­fjár eða lána.

Skuldar Arion banka átta millj­arða

United Sil­icon rekur kís­­il­­málm­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­stöðvun 14. ágúst síð­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­leikar í rekstri kís­­il­­málm­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­leiðslu í nóv­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­ur­­tek­inna bil­ana í bún­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­ar­­dómur í deilu félags­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­ins. Sam­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­arð króna.

Auglýsing
Kjarninn greindi frá því í gær að Arion banki hafi fært niður 16,3 pró­­sent eign­­ar­hlut sinn í United Sil­icon að fullu í bókum sín­­um. Virði hlut­ar­ins var um einn millj­arður króna.

Bank­inn er auk þess með átta millj­­arða króna útistand­andi við félag­ið, þar með talið lánslof­orð og ábyrgð­­ir. Nið­­ur­­færslu­þörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjár­­hags­­legri end­­ur­­skipu­lagn­ingu United Sil­icon. Þetta kom fram í árs­hluta­­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í gær.

Þrír sjóðir með 2,2 millj­arða undir

Í síð­­­­­ustu viku var greint frá því að þrír íslenskir líf­eyr­is­­­sjóðir hefðu fjár­­­­­fest fyrir sam­tals 2,2 millj­­­arða króna í verk­efn­inu. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­ur, Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­ur­­inn og Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóður fé­lags ís­­­­­lenskra at­vinn­u­flug­­­­­manna (EFÍA). Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn hefur fjár­­­­­fest mest, eða fyrir 1.178 millj­­­ónir króna. Festa lagði félag­inu til 875 millj­­ónir króna í hlutafé og skulda­bréfa­lán. Allir þrír sjóð­irnir tóku þátt í hluta­fjár­­­­aukn­ingu í apríl og lögðu þá 460 millj­­­­ónir króna til við­­­­bótar í United Sil­icon.

Arion banki rekur auk þess Frjálsa líf­eyr­is­­­­­sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum bank­ans í Borg­­­­­ar­­­­­túni. Bank­inn skipar þrjá af sjö stjórn­­­­­ar­­­mönnum Frjálsa líf­eyr­is­­­sjóðs­ins sam­­­kvæmt sam­­­þykktum hans.

EFÍA er líka rek­inn af Arion banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent