Vesturhús höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur er illa farið af rakasemdum og það kostar milljarða króna að gera við það. Málið var rætt á stjórnarfundi í Orkuveitunni í gær en ákvörðum um til hvaða aðgerða verði gripið liggur ekki fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Reykjavíkurborg á 93,5 prósent hlut í Orkuveitunni.
Þar segir að sex leiðir hafi verið skoðaðar til að leysa málið. Áætlaður kostnaður þeirra er á bilinu 1.500-3.020 milljónir króna. Sá kostnaður bætist við þegar áfallinn kostnað vegna skemmdanna sem er 460 milljónir króna.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að þetta séu vond tíðindi. „Við verðum þó að takast á við þann veruleika sem við okkur blasir. Okkur liggur ekki á að ákveða okkur og getum þess vegna gefið okkur tíma í gott samtal um hvernig er best að ráða fram úr stöðunni. Vesturhúsið stendur autt í dag og það truflar ekki grunnþjónustu við viðskiptavini.“
Fór langt fram úr áætlun
Bygging höfuðstöðva Orkuveitunnar var gríðarlega umdeild á sínum tíma. Í skýrslu úttektarnefndar um Orkuveituna, sem birti niðurstöður sínar í október 2012. Byggingakostnaður varð á endanum langt umfram áætlun. Upprunalega átti byggingin að kosta 2,3 milljarða króna en hún kostaði á endanum 5,3 milljarða króna á verðlagi hvers framkvæmdaárs, eða 8,5 milljarða króna á verðlagi ársins 2010.
Í úttektarskýrslunni seir að hluti skýringanna fyrir auknum byggingakostnaði hafi verið rakinn til þess að um eitt þúsund fermetrar bættust við á byggingatímanum og að ekki hafi verið gert ráð fyrir ýmsum öðrum stórum liðum í áætlunum. „Þessi atriði voru ekki borin undir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur eða um þau fjallað meðan á byggingu hússins stóð, og ekki verður séð að athygli stjórnarinnar hafi verið vakin sérstaklega á þessum atriðum á byggingartíma hússins. Svo virðist að auki sem mikill hraði hafi einkennt verkið, enda var unnið kappsamlega að því að koma rekstri fyrirtækisins undir eitt þak, og má hluta af auknum kostnaðarútgjöldum meðal annars rekja til þess[...]Ekki verður heldur fram hjá því litið að Orkuveita Reykjavíkur hefur í dag ekki þörf fyrir svo mikið húsnæði, enda stendur nú einn hluti húsnæðisins nær auður. Hér er í senn um að ræða verulegar fjárhæðir og fjárfestingu fyrirtækis í opinberri eigu, sem ekki nýtist nema að hluta til í rekstri þess. Að mati úttektarnefndarinnar hefði verið rétt að kynna stjórn framvindu byggingarinnar og áfallandi kostnað, og jafnframt hvort rétt væri að draga úr byggingarmagni eða minnka kostnað á meðan á byggingu stóð, til þess að upphaflegar áætlanir stæðust. Svo var ekki gert, og vekur það sérstaka athygli að endanlegur kostnaður vegna hússins virðist ekki hafa legið fyrir fyrr en í lok árs 2005, og að á tímanum hafi komið upp liðir sem gleymst hafi að gera ráð fyrir í hönnun verksins.“
Hægt er að lesa úttekarskýrsluna um Orkuveituna frá árinu 2012 hér.