Fjármálaráðherra segir krónuna leggja fjárhag heimila og fyrirtækja í rúst

„Krónuvinir eru hávaxtavinir“ segir fjármálaráðherra sem ítrekar afstöðu sína til krónunnar í andstöðu við stefnu forsætisráðherra.

Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson á blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var kynnt.
Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson á blaðamannafundi þar sem ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var kynnt.
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, segir íslensku krón­una „leggja fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja í rúst á víxl“. Þetta skrifar hann á Face­book-­síðu sína og vísar í skoð­ana­grein Jónu Sól­veigar Elín­ar­dótt­ur, þing­mann Við­reisn­ar, um gjald­miðla­mál­ið.

„Jóna Sól­veig Elín­ar­dóttir bendir á bestu leið­ina til þess að losna við verð­trygg­ingu og háa vexti. Með því að festa krón­una við annan gjald­mið­il,“ skrifar Bene­dikt á Face­book.

„Við þurfum að muna að krónu­vinir eru um leið hávaxta­vin­ir. Gjald­mið­ill sem leggur fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja í rúst á víxl er ekki góður gjald­mið­ill.“



Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bene­dikt talar opin­skátt um skoðun sína á íslensku krón­unni. Hann skrif­aði grein í síð­asta mán­uði um að krónan væri upp­spretta óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu sem olli fjaðrafoki.

Vegna þess­arar greinar sá Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sig knú­inn til þess að koma í sjón­varps­við­tal og árétta að ekki standi til að skipta um gjald­mið­il. Skoðun Bene­dikts og flokks hans á krón­unni sé hans eigin skoðun og flokks hans, en ekki rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Auglýsing

Vilja gera verð­trygg­ing­una óþarfa

Í grein Jónu Sól­veig­ar, sem birt­ist á Vísi í gær, er fjallað um til­lögur Við­reisnar um hvernig losna megi undan verð­trygg­ing­unni. Til­lög­urnar ganga í grófum dráttum út á að festa krón­una við evru, eins og hefur verið gert til dæmis í Dan­mörku.

„Með því að festa krón­una við evru, t.d. með mynt­ráði eins og við í Við­reisn tölum fyr­ir, náum við fram stöð­ug­leik­anum sem þarf til að lækka vexti og losna undan verð­trygg­ing­unni. Verð­trygg­ingin yrði ein­fald­lega óþörf,“ skrifar Jóna Sól­veig.

Þessi afstaða gengur í ber­högg við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fer með for­ystu í rík­is­stjórn með Við­reisn og Bjartri fram­tíð. Þegar hefur verið skipuð verk­efna­stjórn sem á að meta hvaða mögu­leikar eru fyrir hendi þegar kemur að end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unn­ar. Verk­efna­stjórnin er nú að störfum en í henni sitja Ásgeir Jóns­son, Ill­ugi Gunn­ars­son og Ásdís Krist­jáns­dótt­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent