Starfsemi United Silicon stöðvuð

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

„Um­hverf­is­stofnun hefur tekið ákvörðun um að stöðva starf­semi Sam­ein­aðs Síli­kons hf., sbr. 3. tl. 1. mgr. 26. gr. laga, nr. 7/1998, um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varn­ir. Fyr­ir­tæk­inu hefur verið kynnt sú ákvörðun með bréfi. Óheim­ilt er að end­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­legri heim­ild frá Umhverf­is­stofnun að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og ítar­legu mati á þeim.“



Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Umhverf­is­stofn­un. 

Í bréfi stofn­un­ar­innar vegna þessa, segir meðal ann­ars að mengun frá starf­sem­inni hafi verið óvið­un­andi og ekki hafi tek­ist að koma í veg fyrir hana. 

Óskað hefur verið eftir greiðslu­stöðvun kís­il­verk­smiðj­unn­ar, eins og fram hefur kom­ið. United Sil­icon rekur kís­­il­­málm­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­stöðvun 14. ágúst síð­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­leikar í rekstri kís­­il­­málm­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­leiðslu í nóv­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­ur­­tek­inna bil­ana í bún­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­ar­­dómur í deilu félags­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­ins. Sam­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­arð króna.

Auglýsing

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir. Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka segir að ljóst sé að félagið þarfn­ist auk­ins fjár­­­magns svo bæta megi búnað og aðstöðu svo verk­­smiðjan stand­ist fram­­leiðslu­­mark­mið og gæða­­kröfur sem sett hafa ver­ið. Arion banki hefur lánað átta millj­arða til verk­efn­is­ins.

Því er ljóst að núver­andi hlut­hafar United Sil­icon hafa að öllum lík­­indum tapað eign­­ar­hlut sínum í félag­inu, lán­veit­endur þess munu þurfa að gefa eftir hluta af kröfum sínum og end­ur­skipu­lagn­ing fara fram.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent