Verið að taka peninga fram yfir lífsgæði í Helguvík

Björt Ólafsdóttir segir að það verði að spyrja sig að því hvort ekki sé skynsamlegt að hætta stóriðjustarfsemi í Helguvík áður en að vandræði þar verði enn meiri. Þetta kemur fram í nýjasta sjónvarpsþætti Kjarnans á Hringbraut sem sýndur verður í kvöld.

Björt Ólafsdóttir 13.09.2017
Auglýsing

Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, segir að það sé verið að taka pen­inga fram yfir heilsu og lífs­gæði íbúa í Reykja­nesbæ þegar kemur að upp­bygg­ingu stór­iðju í Helgu­vík. 

Hún gagn­rýnir íviln­un­ar­samn­inga sem síð­asta rík­is­stjórn gerði við stór­iðju­fyr­ir­tæki harð­lega. „Þetta er alls ekki boð­legt. Þetta eru byrðar á herðum okkar sem við verðum að takast á við, og við gerum það ekki nema að taka erf­iðar ákvarð­anir hvað varðar fjár­magn­ið.“ Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut þar sem staða United Sil­icon og frek­ari stór­iðju­upp­bygg­ing í Helgu­vík er til umfjöll­un­ar. Þáttur er á dag­skrá í kvöld klukkan 21.

Björt segir þar að stjórn­mála­menn, bæði á sveit­ar­stjórn­ar­stigi og við rík­is­stjórn­ar­borð­ið, þurfi að fara að spyrja sig hvort sé mik­il­væg­ara heilsa og vel­ferð almenn­ings eða það að verja „vit­lausar fjár­fest­ing­ar“ sem ráð­ist hefur verið í á kostnað almenn­ings. „Ég held að fólk verði að spyrja sig hvort ekki sé komið nóg og hvort ekki sé skyn­sam­legra að hætta núna áður en við erum komin í dýpri súpu og í meiri vand­ræð­i.“

Auglýsing

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ, er einnig gestur þátt­ar­ins. Hann tekur undir með Björt um að umræðan um þessa upp­bygg­ingu hafi verið nokkuð föst í fjár­hags­lega anga hennar í von um að hlut­irnir muni lag­ast. „Ef það gerir það ekki þá munu menn láta líðan og heilsu íbú­anna ganga fyr­ir. Það þarf eng­inn að velkj­ast í vafa um það.“

Aðspurður um hvort það sé for­svar­an­legt að halda starf­semi Unites Sil­icon áfram þá segir Kjartan svo ekki vera nema að for­sendur breyt­ist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent