Stjórn VR, stærsta stéttarfélags landsins, segir að markmið félagsins í komandi kjarasamningum verði að lægstu laun verði skattfrjáls. Það á að gera með þvi að hækka persónuafslátt sem muni í kjölfarið auka kaupmátt lægstu launa og millitekjuhópa umtalsvert. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar VR sem samþykkt var á stjórnarfundi stéttarfélagsins í gær.
Í ályktuninni er farið fram á að fjárhæð persónuafsláttar muni fylgi launavísitölu og að það verði bundið í lög. „Stjórn VR beinir þeim tilmælum til stjórnvalda að endurskoða fjárhæð persónuafsláttar til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990 í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018. Í komandi kjarasamningum er mikilvægt að horft sé til framtíðar og launafólki verði tryggður stöðugleiki og raunveruleg kaupmáttaraukning. Mikilvægur þáttur í því er að festa með lögum að persónuafsláttur fylgi launavísitölu.
Markmið okkar er að lægstu laun verði skattfrjáls með hækkun persónuafsláttar og sem mun auka kaupmátt lægstu launa og millitekjuhópa umtalsvert. Hækkun persónuafsláttar verður ein af aðalkröfum félagsins fyrir komandi kjarasamninga.“
Forsætisráðherra segir vinnumarkaðslíkanið ónýtt
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fjallaði um komandi kjaraviðræður í stefnuræðu sinni í gær. Hann sagði að stærsta einstaka efnahagsvandamálið á Íslandi væri það, að reynd væri vinnumarkaðslíkanið, sem unnið væri eftir, ónýtt. Nú væri mikilvægt að alir sem kæmu að kjaraviðræðum, tækju höndum saman um að horfa til þess hversu mikið svigrúmið til launahækkana án þess að það bitnaði á samkeppnishæfni þjóðarbúsins. „Framundan eru mikilvægir samningar á vinnumarkaði. Allir aðilar verða að rísa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir með sama hætti. Augljóst er að ábyrgð fylgir því að semja, en rétturinn til að semja ekki er einnig vandmeðfarinn. Þegar farið er út af sporinu í kjaraviðræðum á Íslandi með samningum sem þykja ekki samræmast stöðugleika hefst samkvæmisleikur sem við gætum kallað: Hver er sökudólgurinn?
En það er allt of mikil einföldun að skella skuldinni á kröfugerð launþega, einstaka atvinnurekendur, eða eftir atvikum ríkisstjórn eða sveitarfélög sem látið hafa undan þrýstingi um samninga, þegar aðferðafræðin við að leiða fram niðurstöðu er jafn gölluð og raun ber vitni. Leitin að sökudólgnum beinir sjónum frá aðalatriðinu. Vinnumarkaðslíkanið er í raun ónýtt. Þetta eru stór orð. En hver getur mótmælt þessu þegar hver höndin er uppi á móti annarri, nær engin samvinna til staðar og skipulagið tilviljanakennt og breytilegt frá einum kjaraviðræðum til þeirra næstu. Þetta er stærsti einstaki veikleiki íslenskra efnahagsmála um þessar mundir,“ sagði Bjarni.