Þingflokkur Pírata hefur lagt til og skorað á alla aðra flokka á Alþingi að verða við ákalli þjóðarinnar og forseta Íslands og samþykkja nýja stjórnarskrá og boða svo til kosninga „eins fljótt og auðið er“.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Pírata sem barst nú rétt fyrir hádegið.
„Opinberun á valdníðslu gagnvart þolendum kynferðisofbeldis hefur haft djúpstæð áhrif á okkur öll,“ segir í tilkynningunni. „Framganga Bergs Þórs Ingólfssonar sem og annarra aðstandenda og þolenda kynferðisbrota er birtingarmynd þess hvernig einstaklingar geta haft áhrif og breytt samfélaginu. Við dáumst að hugrekki og heilindum þeirra sem stigið hafa fram.“
„Þetta sýnir að almenningur ræður og almenningur, fyrir fimm árum síðan, valdi nýja stjórnarskrá.“
Þingflokkur pírata telur að með framgöngu sinni í þessu máli hafi Sjálfstæðisflokkurinn sýnt fram á að hann sé óstjórntækur.