Ráðherra braut lög við skipan dómara í Landsrétt

Héraðsdómur komst að niðurstöðu um að dómsmálaráðherra hefði brotið lög.

Sigríður Andersen
Sigríður Andersen
Auglýsing

Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra braut lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Þetta er nið­ur­staða hér­aðs­dóms sem kveðin var upp í dag. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún taldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar.

Upp­fært klukkan 14:44: Áréttað er að íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefn­enda og máls­kostn­aður fellur nið­ur. Ljóst er að ráð­herra var heim­ilt að leggja til skipun ann­arra umsækj­enda en þeirra sem dóm­nefnd taldi hæf­asta. „Það breytir hins vegar ekki því að ráð­herra bara eftir sem áður stjórn­skipu­lega ábyrgð á skipun dóm­ara við Lands­rétt [...] og var við hana bund­inn af almennum reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins, bæði hvað varðar með­ferð máls­ins sem og þá efn­is­legu ákvörðun sem ráð­herra tók þegar hún lagði til við Alþingi að til­teknir ein­stak­lingar yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara,“ segir í dómn­um.

Dóm­inn má lesa í heild sinni hér.

Auglýsing

Það er talið vera brot gegn dóm­stóla­lögum og reglum stjórn­sýslu­réttar að ekki hafi verið borin saman hæfni og reynsla dóm­ara­efna. Rök­stuðn­ing­ur­inn hafi verið óljós og heild­stæður sam­an­burður á umsækj­endum hafi ekki farið fram. „Ekki verður því full­yrt að ráð­herra hafi valið 15 hæf­ustu ein­stak­ling­ana í Lands­rétt.“

Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins er tekið fram að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

Ríkið var sýknað af bóta­kröfum Ást­ráðs Har­alds­sonar sem höfð­aði mál gegn rík­inu vegna þess að hann fékk ekki dóm­ar­stöðu við Lands­rétt. Hann hefur ákveðið að áfrýja þeim þætti máls­ins til Hæsta­réttar sem lýtur að bóta­kröfu, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­manni Ást­ráðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent