Meirihluti vill Vinstri græn í nýja ríkisstjórn

Fleiri nefna Vinstri græn, Framsóknarflokkinn og Samfylkinguna en síðustu ríkisstjórnarflokka þegar spurt er um drauma ríkisstjórn kjósenda. Niðurstöður þjóðarpúls Gallup verður kynntur í dag.

Gengið verður til atkvæða 28. október næstkomandi. Vinstri græn eiga að vera í næstu ríkisstjórn að matri flestra sem tóku þátt í könnun Gallup.
Gengið verður til atkvæða 28. október næstkomandi. Vinstri græn eiga að vera í næstu ríkisstjórn að matri flestra sem tóku þátt í könnun Gallup.
Auglýsing

Meira en helm­ingur þeirra sem svör­uðu nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup segj­ast vilja að Vinstri græn taki sæti í rík­is­stjórn sem tekur við eftir kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi.

Fleiri vilja fá annað hvort Fram­sókn­ar­flokk­inn eða Sam­fylk­ing­una en Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu rík­is­stjórn.

Frétta­stofa RÚV greindi frá nið­ur­stöðum könn­unar Gallup á vefnum í dag. Búast má við að greint verði frá fylgi flokka miðað við könnun Gallup síðar í dag.

Spurt var: Hvaða flokk­ar, tveir eða fleiri, myndir þú vilja að mynd­uðu nýja rík­is­stjórn? Vinstri græn voru oft­ast nefnd, eða af 57 pró­sent svar­enda. 35 pró­sent nefndu Fram­sókn­ar­flokk­inn, 33 pró­sent vilja Sam­fylk­ing­una, 31 pró­sent vilja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, 30 pró­sent sögð­ust vilja fá Pírata að stjórn­ar­borð­inu. Þá nefdu 26 pró­sent Bjarta fram­tíð en 19 pró­sent Við­reisn.

Nið­ur­stöður könn­unar Gallup 20. sept­em­ber 2017

Hvaða flokk­ar, tveir eða fleiri, myndir þú vilja að mynd­uðu nýja rík­is­stjórn? – Gallup 20. september 2017

Af þeim flokkum sem ekki hafa sæti á Alþingi í dag nefndu 19 pró­sent svar­enda Flokk fólks­ins og Dögun var nefnd af fjögur pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar.

Sú sam­setn­ing flokka sem fólk nefndi oft­ast var sam­steypu­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 14 pró­sent þeirra sem svör­uðu nefndu það. Ann­ars sögð­ust sex pró­sent vilja rík­is­stjórn Pírata, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

Auglýsing

Fimm pró­sent svar­enda nefndu rík­is­stjórn­ar­sam­starf milli Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Fjögur pró­sent svar­enda nefndu Vinstri græn og Bjarta fram­tíð og önnur fjögur pró­sent sögð­ust vilja sjá sam­starf Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrsta könnun Gallup eftir stjórn­ar­slit

Sá þjóð­ar­púls Gallup sem birtur er í dag er fyrsta könnun Gallup síðan Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu í síð­ustu viku. Könn­unin var gerð dag­ana 15. til 19. sept­em­ber. 1.143 voru í úrtaki könn­unar og þátt­töku­hlut­fallið rúm­lega 53 pró­sent, að því er kemur fram á vef RÚV.

Búast má við að tíðni kann­ana á fylgi stjórn­mála­flokka muni aukast á næstu vik­um, enda er stutt til kosn­inga. Kjarn­inn mun birta Kosn­inga­spá í sam­starfi við Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ing fyrir þessar kosn­ingar eins og síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar og sveita­stjórn­ar­kosn­ing­ar.

Í kosn­inga­spánni eru kann­anir vigtaðar út frá fyr­ir­fram ákveðnum stuðlum og nið­ur­stöður allra kannna þannig lagðar saman í eina spá um fylgi við stjórn­mála­flokka. Kosn­inga­spáin verður kynnt betur og nið­ur­stöður hennar birtar á Kjarn­anum á næstu dög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent