Uppsöfnuð viðhaldsþörf innviða 372 milljarðar króna

Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafaverkfræðinga hafa gefið út skýrslu um ástand innviða landsins, og metið þörfina á fjárfestingum. Mikill uppsöfnuð þörf er á innviðafjárfestingum.

losun-gjaldeyrishafta_18598739242_o.jpg
Auglýsing

Mikil þörf er á því að ráð­ast í inn­viða­fjár­fest­ingar hér á landi, en upp­söfnuð við­halds­þörf fjár­fest­inga í þeim er metin 372 millj­arðar króna, eða sem nemur um 11 pró­sentum af heild­ar­end­urstofn­virði inn­viða í land­in­u. 

Til þeirra telj­ast meðal ann­ars hafn­ir, flug­vell­ir, veg­ir, orku­mann­virki, veitu­kerfi, úrgangs­mál og fast­eignir í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga. 

Þetta kemur fram í viða­mik­illi skýrslu Sam­taka iðn­að­ar­ins og Félags ráð­gjafa­verk­fræð­inga, þar sem fjallað er um inn­viði í land­inu og stöðu ein­stakra þátta. Hún verður kynnt á fundi í Hörpu í dag. Í for­mála skýrsl­unnar segir dr. Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins, að nú sé réttur tíma­punktur til að huga að stór­felldum inn­viða­fjár­fest­ing­um. „Fjár­fest­ing í dag er hag­vöxtur á morg­un,“ segir Sig­urð­ur, en með skýrsl­unni vilja SI og Félag ráð­gjafa­verk­fræð­inga stuðla að umræðu um mik­il­vægi inn­viða­fjár­fest­inga í land­inu.

Auglýsing

Heild­ar­end­urstofn­virði ofan­greindra inn­viða er áætlað 3.493 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar stóðu heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóða lands­manna í 3.725 millj­örðum króna í lok júlí 2017. 

Með end­urstofn­virði er átt við kaup­verð eða kostn­að­ar­verð ­sam­bæri­legra inn­viða með sömu fram­leiðslu og/eða þjón­ustu­getu, að því er segir í skýrsl­unni. „Færa má rök fyrir því að virði þess­ara eigna fyr­ir­ ­sam­fé­lagið sé mun meira þegar tekið er til­lit til þess hvað þær ­leggja til verð­mæta­sköp­unar efna­hags­lífs­ins. Af þessu má ljóst vera að veru­leg verð­mæti eru bundin í innviðum hag­kerf­is­ins. Af ein­stökum innviðum er end­urstofn­virðið hæst í orku­vinnslu (850–900 millj­arðar króna), vega­gerð (870–920 millj­arð­ar­ króna), fast­eignum ríkis og sveit­ar­fé­laga (440 millj­arðar króna), orku­flutn­ingum (320 millj­arðar króna) og flug­völlum (240–280 millj­arðar króna). Lægst er end­urstofn­virðið í úrgangs­mál­u­m (35–40 millj­arðar króna),“ segir í skýrsl­unni.

Innviðir, og ástandseinkunn þeirra, eins og hún birtist í skýrslunni.

Að með­al­tali fá inn­viðir sem skýrslan nær til ástands­ein­kunn­ina 3,0 en ein­kunn­ar­gjöfin er á bil­inu 1 til 5 þar sem 1 er lægsta ­ein­kunn og 5 sú hæsta. 

Miðað við þessa ein­kunn er staða inn­viða að með­al­tali við­un­andi en ekki góð. „Ein­kunnin seg­ir að búast megi við umtals­verðu við­haldi til þess að halda upp­i­ ­starf­semi þess­ara inn­viða og að nauð­syn­legt verði að leggja í fjár­fest­ingar í þeim til fram­tíðar lit­ið,“ segir í skýrsl­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent