Telja háttsemi Gagnaveitunnar samkeppnishamlandi

Samtök iðnaðarins sendu erindi til borgarstjóra vegna starfsemi Gagnaveitunnar, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri GR segir bréfið „sérkennilegt“ og í því sé ekki farið rétt með staðreyndir.

losun-gjaldeyrishafta_18598739242_o.jpg
Auglýsing

Sam­tök iðn­að­ar­ins (SI) sendu Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra bréf 11. októ­ber síð­ast­lið­inn, þar sem þau lýsa yfir áhyggjum sínum vegna hátt­semi Gagna­veitu Reykja­víkur (GR), dótt­ur­fé­lags Orku­veitu Reykja­víkur (OR), og segja hana sam­keppn­is­hamlandi. OR er 95 pró­sent í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar. 

Í bréf­inu er sér­stak­lega vikið að því að GR skuli bræð­i­sjóða fjar­skipta­lagnir innan húsa við ljós­leið­ar­a­taug. Er þetta sagt fara gegn úrskurðum Póst- og fjar­skipta­stofn­unar og úrskurð­ar­nefndar fjarf­skipta­mála, en að GR hafi haldið áfram upp­teknum hætti eftir þá nið­ur­stöð­u. „Þessi frá­gangur GR leiðir til þess að eng­inn þjón­ustu­veit­andi í innvið­um, annar en GR, kemst að inn­an­hússlögnum í við­kom­andi hús­um,“ segir í bréfi SI til borg­ar­stjóra, og er þetta sagt hamla sam­keppni og koma í veg fyrir að aðrir þjón­ustu­veit­endur á þessu sviði, kom­ist inn á mark­að­inn.

Í svar­bréfi sem for­stjóri GR, Erling Freyr Guð­munds­son, sendi í gær til Sig­urðar Hann­es­son­ar, fram­kvæmda­stjóra SI, borg­ar­stjóra, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar, Voda­fo­ne, Sím­ans og Sam­taka upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækja, er látið að því liggja að SI séu með bréfi sínu að ganga erinda ein­stakra fyr­ir­tækja á mark­aðn­um. Hann nefnir ekki á nafn hvaða fyr­ir­tæki það er, en segir það lík­lega vera Sím­ann/Mílu, sem sé í sam­keppni við Ljós­leiðar­ann á vegum GR og mark­aðs­ráð­andi.

Auglýsing

Erling segir það vekja sér­staka athygli að bréfið sé sent til stjórn­valds sem hefur ekki beint með málið að gera. Þá er það sagt „sér­kenni­legt“ og í því sé ekki rétt farið með stað­reyndir mála. Hann segir Ljós­leiðarann, á vegum GR, hafa verið í mik­illi sam­vinnu við fjöl­marga aðila við að styrkja fjar­skipta­kerfi lands­ins og inn­viði á sviði net­þjón­ustu. Þar á meðal séu raf­verk­takar og aðrir sem sinni iðn­aði af ýmsum toga. 

Í nið­ur­lagi bréfs­ins segir hann að starfs­fólk GR sé til­búið að ræða við SI um það sem snýr að starf­semi félags­ins, og ekki síður að hlusta eftir skýr­ingum SI á þessu „sér­kenni­lega“ bréfi.

Skoða má bréfa­skipti SI og for­stjóra GR hér með­fylgj­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent