Glitnir fer fram á lögbann á umfjöllun Stundarinnar um forsætisráðherra

Eignarhaldsfélagið utan um eftirstandandi eignir Glitnir telur að umfjöllun Stundarinnar, The Guardian og Reykjavik Media byggi á gögnum sem séu bundnar bankaleynd. Farið hefur verið fram á lögbann á umfjallanir byggðar á gögnunum.

stundin
Auglýsing

 Glitnir HoldCo ehf., eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is, fór á föstu­dag­inn fram á það við sýslu­manns­emb­ættið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að lög­bann verði lagt við birt­ingu Stund­ar­innar og Reykja­vík Medi­a ehf. á fréttum eða annarri umfjöllun sem byggja á eða eru unnar úr gögnum er varða einka­mál­efni veru­legs fjölda fyrr­ver­andi við­skipta­vina Glitn­is. Á meðal þeirra sem fjallað hefur verið ítar­lega um er Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Glitnir Holdco telur að upp­lýs­ing­arnar séu bundn­ar ­banka­leynd. 

Í til­kynn­ingu segir að Glitnir hafi ráðið breska lög­manns­stofu til að gæta hags­muna sinna ­vegna umfjöll­unar The Guar­dian sem byggir á sömu gögn­um. Glitnir hafi jafn­framt til­kynnt umrætt brot til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem fer með rann­sókn ­máls­ins.

Umfjöllun Stund­ar­inn­ar, Reykja­vik Media og The Guar­dian hófst með því að sagt var frá því 6. októ­ber síð­ast­lið­inn að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefði selt all­ar eign­ir sín­ar í Sjóði 9 hjá Glitni, fyrir um 50 millj­­ónir króna, dag­ana fyr­ir banka­hrun­ið. Í des­em­ber í fyrra hafði Bjarni verið spurður í sjón­varps­þætti á Stöð 2 út í eign sína í Sjóði 9 og hvort hann hefði selt. Þá svar­aði hann því til að hann hefði ekki átt neitt sem skipti máli í sjóðn­um.

Auglýsing
Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur einnig verið fjallað um tveggja millj­arða króna kúlu­lán sem eign­ar­halds­fé­lag Bjarna og náinna fjöl­skyldu­með­lima hans fengu til að kaupa allt hlutafé í N1, 50 milljón króna kúlu­lána­skuld hans sem var færð yfir á skuld­sett eign­ar­halds­fé­lag Bjarna sem var síðan slitið og um að vitn­is­burður Bjarna í Vafn­ings­mál­inu svo­kall­aða stang­ist á við þau gögn sem Stund­in, Reykja­vik Media og The Guar­dian hafa undir hönd­um. 

Þá hefur Stundin einnig greint frá því að gögnin sem mið­ill­inn hafi undir höndum sýni að Bjarni hafi verið virkur þátt­tak­andi í við­skiptum aflands­fé­lags­ins Falson, sem hann átti hlut í. 

Upp­fært 17:24: Sýslu­maður féllst á lög­banns­kröf­un, að því er fram kemur í frétt RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent